Breytingar á skipuriti Akraneskaupstaðar hafa verið til umræðu í bæjarráði og bæjarstjórn. 

Bæjarstjórn mun taka endanlega ákvörðun á fundi sínum þann 13. janúar 2026 – en tillögurnar voru til umfjöllunar á fundi bæjarstjórnar þann 9. desember.  

Tillögurnar fela í sér eftirfarandi breytingar:

Skrifstofa bæjarstjóra er lögð niður – en þessi stjórnkerfisbreyting var tekin upp í desember árið 2020.

Hlutverk skrifstofunnar var að ná betri samþættingu innan ákveðinna málaflokka sem undir hana heyra ásamt því að skýra ábyrgð og forgangsröðun verkefna. Einnig hafði skrifstofan það hlutverk að veita bæjarbúum, bæjarfulltrúum, forstöðumönnum og öðrum þeim sem á þurfa að halda, góða þjónustu, ráðgjöf og upplýsingar um málaflokka skrifstofunnar. :

 Breytingar á stjórnsýslu- og fjármálasviði

– Heiti sviðsins er breytt í fjármála- og þjónustusvið.

– Stofnuð verði mannauðs- og launadeild sem heyri undir sviðið.

– Stofnuð verði þjónustu- og þróunardeild sem heyri undir sviðið.

– Fjármáladeild verði fjármála- og innkaupdeild.

Breytingar á skóla- og frístundasviði

– Heiti sviðsins verði mennta- og menningarsvið.

– Menningar- og safnamál heyri undir sviðið.

– Akranesviti heyri undir menningar- og safnamál.

– Menningar og safnanefnd verði lögð niður frá og með 1. júní 2026 og málefni sem þann málaflokk varða heyri undi mennta- og menningarráð.

Breytingar á velferðar- og mannréttindasviði

– Formfesting breytinga á velferðar- og mannréttindasviðs frá árinu 2023 sem byggðu á stjórnunarkenningum sem leggja áherslu á samþættingu, skýrar ábyrgðarlínur og markvissa teymisvinnu. Með þeim var skapað sveigjanlegra og samhæfðara umhverfi sem styður betra upplýsingaflæði og þverfaglegt samstarf. Þannig var styrkt við heildstæða og samræmda þjónustu bæði við börn og fullorðna.

Í fundargerðinni kemur fram að allar framangreindar breytingar eru gerðar með það að markmiði að styrkja einstök svið svið og málaflokka, skýra umboð og ábyrgð og auka skilvirkni í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar.