Karlalið ÍA í körfuboltanum hefur gert breytingar á leikmannahóp sínum og aðstoðarþjálfari liðsins er hættur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Skagamenn hafa tapað fjórum leikjum í röð í Bónusdeild karla – efstu deild Íslandsmótsins. ÍA er í næst neðsta sæti með 6 stig og Ármann er í neðsta sæti með 4 stig. Tvö neðstu liðin falla í næst efstu deild. 

Næsti leikur ÍA er á heimavelli 8. janúar gegn Grindavík. 

Friðrik Hrafn Jóhannsson aðstoðarþjálfari liðsins hefur látið af störfum en hann kom til ÍA frá Tindastóli s.l. sumar. 

ÍA hefur samið við bandaríska leikmanninn Darryl Latrell Morsell, sem lék með liði Keflavíkur frá því í byrjun tímabilsins hefur samið við ÍA. Hann er þriðji bandaríski leikmaðurinn sem ÍA fær til sinna raða. 

Dibaji Walker sem kom til ÍA í nóvember s.l. er farinn frá ÍA en hann  lék með liði Ármanns áður en hann kom til ÍA. 

Darnell Cowart lék fyrstu fimm leikina með ÍA – en hann var látinn fara eftir 5 umferðir. 

Darryl Latrell Morsell skoraði 17,5 stig að meðaltali í 11 leikjum með Keflavík í fyrri umferð Íslandsmótsins. Hann er 1.96 m. á hæð og leikur sem bakvörður. Hann tók 6.8 fráköst og gaf 3.8 stoðsendingar. Framlagstala hans var 17.7.

Dibaji Walker skoraði 13.5 stig að meðatali fyrir ÍA í 8 leikjum. Hann tók 4.8 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Framlagstala hans var 14.3.

Darnell Cowart skoraði 18.8 stig að meðaltali í 5 leikjum fyrir ÍA. Hann tók 6.8 fráköst og gaf 3,4 stoðsendingar að meðaltali. Framlagstala hans var 18.4