
Stefán Teitur Þórðarson mun að öllum líkindum leika með þýska liðinu Hannover 96 – sem leikur í næst efstu deild.
Skagamaðurinn, sem er 27 ára, fór í læknisskoðun hjá þýska liðinu í lok síðustu viku, og má gera ráð fyrir að hann skrifi undir samning fljótlega.

Stefán Teitur hefur leikið með enska liðinu Preston North End undanfarin ár en áður var hann hjá danska liðinu Silkeborg.
Samkvæmt fréttum frá Englandi er talið að kaupverðið sé um 140 milljónir kr. – sem er svipuð upphæð og enska liðið greiddi fyrir Stefán þegar hann var keyptur frá Silkeborg árið 2024.
Landsliðsmaðurinn hefur leikið 64 leiki með Preston en hann hefur ekki fengið mörg tækifæri hjá liðinu á undanförnum vikum og mánuðum.
Hannover er í 5. sæti næstu efstu deildar.
Ef þetta ferli gengur upp þá verða tveir fyrrum leikmenn ÍA í Þýskalandi.
Ísak Bergmann Jóhannesson leikur með Köln í efstu deild en hann var áður hjá Fortuna Düsseldorf sem leikur í næst efstu deild.







