Allir dagar í janúar voru snjólausir á Akranesi.

Slíkar veðuraðstæður í janúar eru óvenjulegar en slíkt hefur ekki gerst í áratugi. Þetta kemur fram í samantekt Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings á blika.is. 

Síðast féll snjór í Reykjavík og nágrenni þann 16. desember s.l. og snjóföl var á þessu svæði þann 15. des. Frá þeim tíma hefur ekkert snjóað í Reykjavík og næsta nágrenni. 

Samkvæmt gögnum Einars var janúar 1929 og 1940 alveg snjólausir líkt og á þessu ári. Einn alvítur dagur mældist í janúar 1961 og aftur 2002.

Einar telur það ólíklegt að það snjói á Reykjavíkursvæðinu næstu 7-10 daga.