Karlalið ÍA í körfuknattleik hefur gert breytingar á leikmannahóp sínum fyrir lokakafla Íslandsmótsins í Bónusdeildinni, efstu deild. 

Króatinn Josip Barnjak hefur verið leystur undan samningi sínum en hann kom til liðsins s.l. haust. Barnjak skoraði 11 stig að meðaltali í 16 leikjum með ÍA, tók 5 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. 

Í hans stað kemur Ivan Gavrilovic frá Serbíu. Hann lék með liði Tindastóls í vetur en var sagt upp störfum nýverið. Gavrilovic er miðherji. Hann skoraði 17 stig að meðaltali fyrir Tindastóls og tók 6 fráköst að meðaltali á þeim 23 mínútum sem hann lék að meðaltali fyrir félagið. 

Skagamenn hafa gert margar breytingar á tímabilinu.

Brasilíumaðurinn Victor Bafutto er mættur á Skagann á ný og leikur með körfuknattleiksliði ÍA í næstu leikjujm liðsins í Bónusdeildinni.

Victor, sem er 2.04 metrar á hæð, átti stóran þátt í því að ÍA sigraði í 1. deild karla á síðustu leiktíð – þar sem miðherjinn öflugi var á meðal frákasta – og stigahæstu leikmanna deildarinnar.

Skagaliðið hefur átt í vandræðum eftir að miðherjinn Gojko Zudzum meiddist á hné um miðjan desember s.l.

ÍA hefur tapað öllum leikjum sínum þar sem að Bosníu og Hersegovínu maðurinn, Zudsum, hefur verið fjarverandi.

Bandaríski leikmaðurinn Darryl Latrell Morsell kom til félagsins í byrjun janúar frá liði Keflavíkur – þar sem hann lék áður. Morsell er þriðju bandaríski leikmaðurinn hjá ÍA í vetur. 

Dibaji Walker kom til ÍA í nóvember s.l. en hann hafði áður leikið með liði Ármanns en hann lék fjóra leiki með ÍA. Darnell Cowart hóf tímabilið með ÍA en hann var látinn fara eftir 5 umferðir.