
Böðvar Böðvarsson er nýr leikmaður hjá Knattspyrnufélagi ÍA.
Hann kemur frá FH þar sem hann var m.a. Íslandsmeistari árið 2016 og 2017.

Samningur hans er til næstu tveggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍA.
Böðvar er þrítugur og hefur mest leikið sem vinstri bakvörður. Hann var atvinnumaður á árunum 2016-2023 í Danmörku, Póllandi og lengst af í Svíþjóð.
Skagamenn hafa samið við þrjá reynslumikla leikmenn að undanförnu – sem allir hafa reynslu úr atvinnumennsku. Gísli Eyjólfsson og Guðmundur Þórarinsson komu nýverið til ÍA og nú bætist Böðvar í hópinn.









