
ÍA og Fjölnir úr Reykjavík mætast í úrslitaleik VÍS- bikarkeppni Körfuknattleikssambands Íslands sunnudaginn 8. febrúar.
Um er að ræða úrslitaleik í 9. flokki – en leikmenn sem eru gjaldgengir í þann flokk eru í 9. bekk grunnskóla eða yngri.

Leikurinn fer fram í Smáranum í Kópavogi og hefst hann kl. 12:00. Í tilkynningu frá félaginu eru Skagamenn nær og fjær hvattir til þess að mæta og sýna stuðning.
Tölfræði leiksins verður aðgengileg hér:
Þetta er í fyrsta sinn í sögu Körfuknattleiksfélags Akraness þar sem að lið úr yngri flokkum félagsins leikur til úrslita í bikarkeppni KKÍ.
ÍA lagði Breiðablik í undanúrslitaleiknum, 59:51, sem fram fór á heimavelli ÍA – að viðstöddum um 200 áhorfendum.
Í átta liða úrslitum hafði ÍA betur gegn liði KR, 55:49.
*Meistaraflokks lið ÍA lék til úrslita í bikarkeppni KKÍ árið 1996 og er það í fyrsta og eina sinn sem ÍA hefur leikið til úrslita í bikarkeppni KKÍ í mfl. karla. Þar hafði lið Hauka betur.









