
Uppsjávarskipið Víkingur AK 100 landaði í byrjun febrúar í Akraneshöfn.
Aflinn var kolmunni og alls var landað 2.256 tonnum.

Víkingur AK 100 landaði síðast í Akraneshöfn í apríl 2025.
Kolmunni er ein af 10 mest veiddu fisktegundum í heimi og fer um 95% af heildarafla hvers árs í bræðslu.
Víkingur AK 100 var vígður í Akraneshöfn í desember árið 2015.
Skipið var smíðað í Tyrklandi og er það tæplega 82 metrar á lengd og 17 metrar á breidd.
Frá því að skipið var tekið í notkun hefur hafa um 9% af löndunum Víkings AK 100 farið fram í Akraneshöfn. Skipið landar að öllu jöfnu á Vopnafirði.
Fiskveiðiárin 2021-2022, og 2022 og 2023, landaði Víkingur AK 100 alls 13 sinnum á Akranesi.
Frá upphafi hefur Víkingur AK 100 landað 308 sinnum og hafa 27 þeirra farið fram á Akranesi sem er tæplega 9% heildarhlutfall.
Nánar í töflunni hér fyrir neðan.
Heimild: Upplýsingavefur Fiskistofu.










