Karlalið ÍA í körfuknattleik er í erfiðri stöðu á botni Bónusdeildarinnar – en ÍA tapaði í gær gegn liði Valsmanna á útivelli 102:85.  Staðan var jöfn í hálfleik, 45:45. 

Tölfræði leiksins er hér: 

Þetta var sjöundi tapleikur ÍA í röð í deildinni og eru Skagamenn neðstir með 6 stig. ÍA á eftir að spila fimm leiki í deildinni.

Næsti leikur ÍA er þann 19. febrúar á heimavelli gegn Keflavík. 

Gojko Zudsum spilaði á ný með ÍA eftir langvarandi meiðsli en miðherjinn öflugi skoraði 23 stig og tók 11 fráköst.
Darryll Latrell Morsell skoraði 22 stig, og tók 8 fráköst – en þetta var hans besti leikur með ÍA.
Ivan Gavrilovic lék sinn fyrsta leik með ÍA en hann skoraði 21 stig og tók 4 fráköst. 

Leikir ÍA sem eftir eru: 
19. febrúar: Gegn Keflavík á heimavelli. 
6. mars: Gegn ÍR á útivelli. 
13. mars: Gegn Tindastól á heimavelli.  
20. mars: Gegn Stjörnunni á útivelli. 
26. mars: Gegn Ármanni á heimavelli.