
Rekstur Knattspyrnufélags ÍA gekk vel á síðasta rekstrarári. Jákvæðar niðurstöður þar sem að félagið skilaði 54 milljóna kr. hagnaði og eigið fé félagsins er um 235 milljónir kr.
Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins sem var birtur í gær.

Rekstrargjöld námu 476 millj. kr. og voru gjöldin 50 milljónum kr. hærri en rekstrartekjur ársins sem námu 425 milljónir kr.
Félagið var með leikmannaviðskipti upp á 100 milljónir kr. sem telst sem óreglulegur liður í rekstrarreikningi félagsins. Þessar 100 milljónir gera það að verkum að rekstur félagsins skilaði 54 milljóna kr. hagnaði. Í rekstraráætlun næsta árs er gert ráð fyrir að leikmannasölur skili 80 milljónum kr. í tekjur.
Eggert Herbertsson formaður KFÍA segir í pistli sem er hér fyrir neðan að mikill vöxtur einkenni félagið – sem hefur skilað jákvæðri rekstrarniðurstöðu undanfarin sex ár.
„Það sem gleður mig þó mest er vöxturinn í starfinu. Aldrei hafa verið fleiri iðkendur hjá félaginu og stúlkum hefur fjölgað um rúmlega 70% á síðustu fimm árum. Það leggur sterkan grunn að enn öflugra starfi á komandi árum. Yngri flokka starfið heldur áfram að eflast – þar liggur hjarta félagsins og framtíð þess,“ segir Eggert.









