Batamerki eru á rekstri Akraneskaupstaðar og skammtímalán upp á 1000 milljónir kr. sem tekið var á síðasta ári var greitt upp í lok síðasta árs.

Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs.  

Rekstrartekjur fyrir tímabilið janúar til og með nóvember á síðasta ári eru 4% frá áætlun eða um 517 m.kr.

Rekstrargjöldin á tímabilinu námu 394 milljónum kr. og fóru gjöldin upp um 3%.

Fram kemur í fundargerðinni að lögð verði áhersla á lækkun rekstrarkostnaðar – líkt og undanfarin misseri. 

Launaútgjöld eru um 85 m.kr. undir áætlun eða 1,25% en stærsti áhrifaþátturinn gjaldamegin er vegna lífeyrisskuldbindingar en gjaldfærsla tímabilsins er 312 m.kr. umfram áætlun eða um 65%.

Sem fyrr er rekstur stærsta málaflokksins, þ.e. skóla- og frístundasviðs (fræðslu- og uppeldismál), undir áætlun og nemur um 1,2% eða um 55 m.kr.

Akraneskaupstaður hefur greitt upp þá skammtímalán sem tekið var í apríl á síðasta ári – samtals 1000 milljónir kr.