Sviðsstjórar hjá Akraneskaupstað mættu á fund bæjarráðs þann 12. febrúar s.l. þar sem farið var yfir stöðuna í húsnæðismálum starfsfólks bæjarskrifstofu.

Starfsfólk á bæjarskrifstofu er með aðstöðu til bráðabirgða á tveimur stöðum við Dalbraut. Og er greinilegt að starfsfólk hefur áhuga á að fá skýrari svör um tímalínuna á framtíðarhúsnæði bæjarskrifstofunar.

Í september árið 2021 var bæjarskrifstofunni við Stillholt lokað vegna loftgæðavandamála. Bæjarskrifstofan opnaði í kjölfarið á Dalbraut 4 og árið 2024 var hluti skrifstofunar flutt yfir á Dalbraut 1 þar sem að Íslandsbanki var áður.

Á fundi bæjarráðs með sviðsstjórunum kom fram að vilji bæjarfulltrúa stendur til þess að starfsemi bæjarskrifstofu verði á einum stað með góðum og nútímalegum aðbúnaði fyrir starfsfólk og góðu aðgengi fyrir íbúa.

Í júlí árið 2024 var skrifað undir viljayfirlýsingu við ríkisvaldið þess efnis að nýtt ráðhús verði byggt á Mánabraut við nýjan Sementsreit. Í þeirri byggingu er gert ráð fyrir leiguhúsnæði fyrir stofnanir ríkisins á Akranesi og aðstöðu fyrir nýja heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar vesturlands á Akranesi (HVE).

Samkvæmt fundargerðinni hefur Akraneskaupstaður ekki fengið skýr svör frá ríkisvaldinu varðandi þá uppbyggingu og tímalínan er ekki til staðar.

„Bæjarráð fyrir sitt leyti og fyrir hönd allrar bæjarstjórnar leggur áherslu á málið og að reynt verði eftir fremsta megni að varpa skýru ljósi á mögulega framvindu verkefnisins því óvissan í svona málum er eðli máls samkvæmt erfiðust fyrir alla hlutaðeigandi,“ segir í tilkynningu bæjarráðs.

Viljayfirlýsingin sem undirrituð var sumarið 2024 felur í sér að Akraneskaupstaður hyggst endurbyggja Mánabraut 20 þar sem stefnt er að því að ný bygging muni hýsa ráðhús Akraneskaupstaðar og mögulega fleiri stofnanir sveitarfélagsins. Ríkið lýsir yfir áhuga á að leigja aðstöðu í nýju húsnæðinu fyrir starfsemi ríkisstofnana á Akranesi

Gamla skrifstofubygging Sementsverksmiðjunnar við Mánabraut 20, hafði til þessa dags verið í sameign Ríkis og Akraneskaupstaðar. Akraneskaupstaður á nú alla bygginguna.