
Jaðarsbakkalaug verður lokað tímabundið frá og með kl. 18 í dag vegna skorts á köldu vatni.
Íbúar á Akranesi eru hvattir til þess að fara vel með kalda vatnið á næstu dögum – en þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum.

Akraneskaupstaður, Veitur og Brim hafa komist að samkomulagi að forgangsraða kalda vatninu í loðnuvertíðina sem nú stendur yfir. Gert er ráð fyrir að þetta ástand standi yfir í 2-3 vikur.
Tilkynningin er hér fyrir neðan:
Kæru íbúar og viðskiptavinir
Nú er loðnuvertíðin fram undan á Akranesi með tilheyrandi aukningu á vatnsnotkun. Í ár kemur vertíðin hins vegar inn í óvenju langa þurrkatíð, sem gerir vatnsbúskap bæjarins viðkvæmari en ella.
Á meðan loðnuvertíð stendur yfir eykst heildar vatnsþörf í bænum verulega. Alla jafna er það ekki vandamál, en nú hafa einhverjir mestu þurrkar þessa árstíma í nærri heila öld, ásamt langvarandi frosti, haft áhrif á vatnstökusvæði bæjarins. Úrkoma hefur verið lítil og vatnsból Akraness eru sérstaklega háð veðri og náttúruskilyrðum.
Neysluvatn Skagamanna og nærsveita er lindarvatn frá Ósveitu og Slögu ásamt vatni úr Berjadalsá. Allt vatn er meðhöndlað og gegnumlýst til að tryggja heilnæmi þess.
Til að tryggja nægt vatn á meðan vertíð og þurrkar standa yfir biðla Veitur til íbúa og fyrirtækja að huga sérstaklega að notkun kaldavatnsins næstu vikur. Um er að ræða tímabundið ástand.
Veitur og rekstraraðili loðnuvinnslunnar hafa með nýsköpun og samvinnu unnið að því að minnka notkun í loðnuvinnslunni um allt að 80%, án þess að draga úr gæðum eða öryggi. Eftir stendur þó að vinnslan þarf töluvert neysluvatn í framleiðsluna sem skapar fjölmörg störf á Skaganum.
Veitur eru að sama skapi í góðu samstarfi við aðra stórnotendur á Akranesi og öll hafa þegar gripið til ráðstafana til að takmarka vatnsnotkun sína. Jaðarsbakkalaug lokar í dag kl. 18 og verður lokuð eitthvað áfram. Guðlaug verður lokuð þar til annað verður tilkynnt. Bjarnalaug notar frekar lítið vatn og því er hægt að halda henni opinni.
Þar sem úrkoma virðist áfram lítil biðlum við til allra fyrirtækja, stofnana og íbúa að fara sparlega með kalda vatnið næstu vikurnar. Þannig tryggjum við að nóg sé til fyrir mikilvæga verðmætasköpun á Akranesi og öll hús fái þann vatnsþrýsting sem þarf.
Drykkjarvatnið má að sjálfsögðu drekka að vild, nota í matseld og láta það renna nóg til að fá það kalt. Önnur ráð eru árangursrík ef öll hjálpast að.
– Látum ekki vatnið renna að óþörfu
– Sleppa því að láta renna í kalda og heita potta
– Láta stutta sturtu duga
– Nota fötu, en ekki slöngu og kúst, í glugga- og bílaþvottinn
– Setja tappa í vaskinn við uppvask
– Nota orku- og vatnssparandi þvottakerfi á þvottavélar og uppþvottavélar, fylla þær áður en þvegið er
Allar ábendingar um hvernig við getum upplýst ykkur enn betur eru vel þegnar og þið getið alltaf haft samband við okkur á
https://www.veitur.is/s/hafa-samband
Veitur vinna með samfélaginu til að tryggja íbúum og atvinnulífi neysluvatn í þurrkatíð.
Með kærri kveðju, starfsfólk Veitna.








