Century aluminum, móðurfélag Norðuráls, gaf í gær út tilkynningu þess efnis að álverið á Grundartanga nái fullum afköstum í lok júlí á þessu ári. Þetta kemur fram í frétt á visir.is.

Frá því október á síðasta ári hefur afkastageta álversins verið einn þriðji af fullum afköstum – vegna alvarlegra bilunar í tveimur spennum álversins.

Í fyrstu áætlunum var gert ráð fyrir að það tæki allt að einu ári að koma framleiðsluferli álversins í full afköst að nýju.

Century aluminum gaf í gær út afkomutilkynningu og þar kemur fram að kerlínan verði sett í gang í lok apríl og fullum afköstum verði náð um mitt sumar 2026.