Skagamaðurinn Ívar Örn Benediktsson hefur vakið mikla athygli í íslensku tónlistarveröldinni – eftir að hann gaf út sína fyrstu hljómplötu þann 31. janúar s.l. Platan heitir einfaldlega „Ívar Ben.“

„Ég hef samið lög frá táningsaldri og safnað í sarpinn í tímans rás, dreymt um að taka upp og koma einhverjum þeirra á almennilegt form. Hafði þó hvorki kunnáttu né tengslanet til að taka skrefið, og kannski síst tíma samhliða fjölskyldu og fullu starfi,“ segir Ívar Örn í færslu sem hann skrifar á fésbókina. 

Þegar heimsfaraldur skall á 2020 auglýsti hinn þekkti lagasmiður Jón Ólafsson úr Nýdönsk lagasmíðanámskeið – þá greip Skagamaðurinn tækifærið. 

„Ég stóðst ekki mátið og skráði mig til leiks, enda heyrt vel af Jóni látið og lengi líkað tónlistin hans. Við fórum í gegnum slatta af lögum sem ég átti til og ég samdi nokkur ný. Jóni leist vel á afraksturinn, hvatti mig til að taka þetta efni upp og bauðst til að hjálpa. Það var of gott tækifæri til að sleppa og upp úr því varð þessi plata að veruleika,“ skrifar Ívar Örn en færslan er í heild sinni hér fyrir neðan. 

Sjá nánar í færslu Ívars hér fyrir neðan. 

Hann er sonur Friðgerðar Bjarnadóttur og Benedikts Rúnar Hjálmarsson og kemur platan út á afmælisdegi föðurs hans 31. janúar 2026.  Rúnar var fæddur árið 1946 og hefði því orðið áttræður þann 31. janúar s.l., en hann lést aðeins 44 ára gamall.

Ívar Örn er sérfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskólans og aðjúnkt við jarðvísindadeild. Rannsóknir hans eru á sviði ísaldar- og jöklajarðfræði og snúa einkum að landmótun jökla og vexti þeirra og hnignun í tíma og rúmi vegna loftslagsbreytinga. Nánar hér:

Ívar Örn var í viðtali á RÁS 2 hjá Ólafi Páli Gunnarsyni – þar sem þeir ræddu um plötuna og hefst viðtalið eftir rétt rúmlega klukkustund í þættinum – nánar hér