Akranesviti dregur að sér tónlistarfólk víðsvegar úr veröldinni – enda er hljómburðurinn í vitanum einstakur. Á fimmtudaginn í þessari viku, 26. febrúar, verða tónleikar kl. 20:30 þar sem að Ásta og Gosi verða í aðahlutverki – en þau eru á tónleikaferðalagi um landið.

Í tilkynningu um viðburðinn kemur eftirfarandi fram:

„Á tónleikunum flytja þau lög af nýjustu breiðskífum sínum, Blokkarbarn og Á floti, ásamt eldra efni. Þetta verður kvöld þar sem tvær ólíkar raddir mætast á sama sviði og lögin fá að njóta sín í nánum og lifandi flutningi.

Ásta og Gosi búa bæði á Ísafirði og hafa verk þeirra hlotið ýmsar viðurkenningar, meðal annars Íslensku tónlistarverðlaunin og Kraumsverðlaunin.“

Húsið opnar klukkan 20:00 og hefjast klukkan 20:30. Miðasala fer fram við innganginn.