Jaðarsbakkalaug og Guðlaug opna á ný síðdegis í dag – en mannvirkin hafa verið lokuð frá 19. febrúar vegna skorts á köldu vatni. 

Í tilkynningu frá Veitum að notkun á neysluvatni hafi verið í lágmarki á Akranesi samkvæmt beiðni fyrirtækisins.

Úrkoma undanfarna 2 daga hefur bætt stöðuna í vatnsbólinu í Akrafjalli og Berjadalsáin er að taka við sér á ný. 

Eins og áður hefur komið fram hefur veðurfarið á Akranesi verið sérstakt undanfarna 2 mánuði. Lítið sem ekkert hefur rignt og vatnsbólin sem bæjarfélagið stólar á voru vatnslítil.   

Þrýstingur á kalda vatninu er eðlilegur á ný segir í tilkynningu frá Veitum – sem er hér fyrir neðan í heild sinni. 

„Samtakamátturinn er greinilega mikill á Akranesi og með heildina í huga tókst að takmarka notkun á neysluvatni verulega um helgina. Við hjá Veitum erum hrifin af hve vel ykkur tókst að fara vel með.

Úrkoman í gær og í dag hefur hjálpað til og nú er staðan í Berjadalsá orðin ásættanleg fyrir íbúa og fyrirtæki í bænum. Jaðarsbakkalaug og Guðlaug þurfa ekki að vera lokaðar og þrýstingur á dreifikerfi vatns er eðlilegur. Athugið að það tekur tíma að opna laugarnar að nýju og þær opna fljótlega eftir hádegi á morgun, miðvikudag.

Úrkoma næstu daga og vikur mun að mestu stjórna því hvort þurfi aftur að grípa til ráðstafana og við biðlum áfram til allra að fara vel með kalda vatnið og þá skiptir mestu að láta það ekki renna viðstöðulaust að óþörfu.

Stórnotendur á Akranesi hafa einnig lagt sig fram um að takmarka sína notkun án þess að draga úr verðmætasköpun í samfélaginu.

Veitur leggja áherslu á ábyrga auðlindanotkun fyrir samfélagið í heild.“