
Listi Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akranesi 2026 var opinberaður í gær.
Miklar breytingar eru á listanum miðað við kosningarnar fyrir fjórum árum.

Alls eru 18 á framboðslistanum en 6 þeirra voru í framboði fyrir fjórum árum – aðrir eru nýir á lista.
Líf Lárusdóttir leiðir listann í annað sinn – en Bjarnheiður Hallsdóttir, er í öðru sæti. Guðmundur Ingþór Guðjónsson er í þriðja sæti líkt og fyrir fjórum árum og Viktor Elvar Viktorsson er í fjórða sæti – en hann er nýr á lista líkt og Bjarnheiður.
Einar Brandsson, sem hefur setið í bæjarstjórn í 16 ár, er ekki á listanum en hann var annar á lista fyrir fjórum árum. Þórður Guðjónsson, sem skipaði 5. sætið í síðustu kosningum, er ekki í framboði í ár.
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórnarkosningunum á Akranesi 2026; feitletruð nöfn eru ný á lista.
- Líf Lárusdóttir, verkefnastjóri og bæjarfulltrúi
- Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri
- Guðmundur Ingþór Guðjónsson, lögreglumaður og bæjarfulltrúi
- Viktor Elvar Viktorsson, húsasmiður
- Ragnheiður Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur
- Emil Kristmann Svævarsson, framkvæmdastjóri
- Ísak Örn Elvarsson, viðskiptastjóri
- Erla Karlsdóttir, aðalbókari
- Rúnar Freyr Ágústsson, verkefnastjóri fjárfestingaverkefna
- Þura Björk Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
- Stefán Orri Ólafsson, lögfræðingur
- Anna Þóra Hannesdóttir, kennaranemi
- Ásta María Búadóttir, viðskiptafræðinemi
- Sigurjón Jósef Magnússon, tónlistarmaður
- Tjörvi Guðjónsson, fjármálastjóri
- Ella María Gunnarsdóttir, sérfræðingur
- Guðný Jóna Ólafsdóttir, verkefnastjóri
- Ólafur Adolfsson, alþingismaður.
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórnarkosningunum á Akranesi 2022. Feitletruð nöfn eru í framboði í kosningunum í ár.
- Líf Lárusdóttir, markaðsstjóri
- Einar Brandsson, tæknifræðingur
- Guðmundur Ingþór Guðjónsson, framkvæmdastjóri
- Sigríður Elín Sigurðardóttir, sjúkraflutningakona
- Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri
- Ragnheiður Helgadóttir, hjúkrunafræðingur
- Anna Maía Þráinsdóttir, verkfræðingur
- Einar Örn Guðnason, vélvirki
- Bergþóra Ingþórsdóttir, félagsráðgjafi
- Guðmundur Júlíusson, tæknimaður
- Ella María Gunnarsdóttir, sérfræðingur
- Erla Karlsdóttir, deildarstjóri
- Daníel Þór Heimisson, bókari
- Erla Dís Sigurjónsdóttir, héraðsskjalavörður
- Helgi Rafn Bergþórsson, nemandi
- Elínbjörg Magnúsdóttir, verkakona
- Ólafur Adolfsson, lyfsali
- Rakel Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri








