
Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar nýverið var ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2025 til umræðu.
Í fundargerð kemur fram að rekstrarniðurstaða ársins 2025 var jákvæð um tæplega 470 milljónir kr. Eigið fé Hvalfjarðarsveitar er rúmlega 5,2 milljarðar kr.

Rekstrartekjur Hvalfjarðarsveitar árið 2025 námu rúmum 1.675 mkr. samkvæmt rekstrarreikningi fyrir A og B hluta en þar af námu rekstrartekjur A hluta tæpum 1.687 mkr.
Rekstrargjöld sveitarfélagsins á árinu 2025 voru 1.423,6 mkr. fyrir A og B hluta en 1.416,1 mkr. fyrir A hluta.
Fjármagnsliðir voru jákvæðir og námu 220,4 mkr. og aðrar tekjur og gjöld voru 4,8 mkr. gjöld.
Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt ársreikningi A og B hluta var jákvæð um 467,1 mkr. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2025 nam 5.243,7 mkr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Veltufé frá rekstri var 31,90%, veltufjárhlutfall 9,03% og eiginfjárhlutfall 96%.
Starfsemi sveitarfélaga skiptist í A-hluta og B-hluta sem saman mynda samstæðu sveitarfélagsins. A-hluti merkir aðalsjóð sveitarfélags auk annarra sjóða og stofnana sem sinna starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð af skatttekjum.
Undir B-hluta falla stofnanir sveitarfélags, fyrirtæki og aðrar rekstrareiningar sem að hálfu eða meiri hluta eru í eigu sveitarfélags og eru reknar sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar.







