Gleðjum saman er verkefni unnið í samstarfi með íþróttafólki þar sem gefnar eru áritaðar treyjur og upplifun til einstaklinga sem hafa gengið í gegnum erfiða tíma, glíma við fötlun/veikindi/sjúkdóma eða eru hversdagshetjur.

Skagastúlkan Agnes Hrund Aronsdóttir fékk nýverið afhenta áritaða Blomberg-Lippe treyju eftir landsleik Íslands og Svartfjallalands í handknattleik kvenna. 

Landsliðskonan Elín Rósa Magnúsdóttir afhenti Agnesi treyjuna. 

Systkini Agnesar eru með þeim á myndinni – enn Elín Rósa og HSÍ buðu Agnesi og allri fjölskyldunni hennar á leikinn.

Agnes Hrund er einkar ljúf ung stelpa sem fæddist með klofinn góm og sjúkdóm sem heitir Pierre Robin Sequence eða PRS.

Syskini Agnesar þau Daníel Orri og Máney Harpa, hafa verið einstaklega dugleg við að hjálpa foreldrum sínum og styðja við hana Agnesi Hrund og eru hennar stærstu stuðningsmenn.