
Lokahátíð upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi fór fram í gær í Tónbergi.
Tólf nemendur úr 7. bekkjum frá Brekkubæjar – og Grundaskóla tóku þátt.

Þau lásu öll upp úr bókinni Fjársjóðsleit í Granada sem Ólafur Páll Jónsson skrifaði. Einnig lásu þau ljóð um fugla í íslenskri náttúru og ljóð að eigin vali.
Gunnar Kristian Arnarsson Wessman úr Brekkjubæjarskóla og Laufey Svanbergsdóttir úr Grundaskóla stóðu uppi sem sigurvegarar.
Myndir: Brekkubæjarskóli.








