
Lið Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi keppti í kvöld í átta liða úrslitum spurningakeppninnar Gettu betur – og var sýnt frá keppninni í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV. Mótherjar FVA var lið Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Niðurstaðan var að FSu hafði betur eftir skemmtilega keppni.

Sunna Arnfinnsdóttir, Ísólfur Darri Rúnarsson og Morten Ottesen skipuðu lið FVA og stóðu sig vel í keppninni í ár – en langt er um liðið frá því að FVA komst í átta liða úrslit í þessari sögufrægu keppni.
Dregið var í undanúrslit keppninnar í kvöld –
Menntaskólinn í Reykjavík og Fjölbrautaskóli Suðurlands eigast við fimmtudaginn 26. mars.
Verzlunarskólinn og Menntaskólinn á Egilsstöðum eigast við fimmtudaginn 2. apríl.







