Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akranesi samþykktur nýverið. Sigurður Vopni Vatnsdal verður í oddvitasætinu – og er þetta í fyrsta sinn sem hann er á framboðslista Samfylkingarinnar á Akranesi. 

Bæjarfulltrúarnir Jónína Margrét Sigmundsdóttir og Kristinn Hallur Sveinsson eru í sæti 2. og 3 en flokkurinn fékk þrjá fulltrúa kjörna í kosningunum fyrir fjórum árum. Valgarður Lyngdal Jónsson,  núverandi forseti bæjarstjórnar, gaf ekki kost á sér.  

Mynd/Jón Gautur Hannesson. 

Listinn er þannig skipaður: 

  1. Sigurður Vopni Vatnsdal, ráðgjafi hjá Sjóvá á Akranesi.
  2. Jónína Margrét Sigmundsdóttir, bæjarfulltrúi og starfsmaður í stuðningi við fólk með áfengis- og fíknivanda.
  3. Kristinn Hallur Sveinsson, bæjarfulltrúi og sérfræðingur hjá Loftmyndum ehf.
  4. Anna Sólveig Smáradóttir, sjúkraþjálfari og varabæjarfulltrúi
  5. Jón Hjörvar Valgarðsson, umsjónarmaður Arnardals og nemi við HÍ
  6. Katrín Valdís Hjartardóttir, sviðsstjóri æskulýðsmála í Vesturlandsprófastsdæmi
  7. Björn Guðmundsson, húsasmiður og varabæjarfulltrúi
  8. Þóranna Hildur Kjartansdóttir, sjúkraliði
  9. Gunnþórunn Valsdóttir, leikskólakennari
  10. Örn Arnarson, grunnskólakennari
  11. Margrét Bjarnadóttir, tannfræðingur
  12. Ásbjörn Þór Ásbjörnsson, viðskipta- og markaðsfræðingur
  13. Agla Harðardóttir, sérfræðingur í gagnaþróun hjá Kviku Banka hf.
  14. Elvar Sigurjónsson, starfsmaður Ölgerðarinnar
  15. Gunnhildur Björnsdóttir, grunnskólakennari og leiðsagnarkennari
  16. Bjarni Vésteinsson, byggingafræðingur
  17. Ásta Egilsdóttir, kennari
  18. Valgarður Lyngdal Jónsson, bæjarfulltrúi og kennari.

    Í tilkynningu frá Samfylkingunni kemur eftirfarandi fram: 

„Samfylkingin á Akranesi mætir til leiks með framboðslista sem skipaður er fólki á öllum aldri, með fjölbreytta þekkingu og reynslu af öllum hliðum samfélagsins okkar hér á Akranesi.

Frambjóðendur okkar starfa við hin ýmsu störf, bæði á einkamarkaði og hjá hinu opinbera, og hafa þá sameiginlegu sýn að til að þjónusta bæjarfélagsins við íbúa sína geti verið framúrskarandi hér eftir sem hingað til, þá þurfi hún að standa á stoðum öflugs og fjölbreytts atvinnulífs.

Samfylkingin leggur áherslu á fyrsta flokks þjónustu við íbúa, metnað í uppbyggingu þeirra mannvirkja sem hýsa þjónustuna og styrka fjármálastjórn bæjarins, byggða á skýrri stefnumótun til framtíðar. Samfylkingin gengur til kosninga í vor með þrjú meginmarkmið:

Að lækka kostnað barnafólks
Að hlúa að fólkinu sem byggði landið
Að auðvelda rekstur og uppbyggingu með einföldun regluverks á öllum sviðum.

Við óskum öllum frambjóðendum til hamingju með þeirra sæti á framboðslistanum og hlökkum til að vinna með þeim í spennandi og skemmtilegri kosningabaráttu á næstu vikum.“