
Skagamaðurinn Styrmir Jónasson var í gær valinn besti ungi leikmaðurinn í Bónus – deild karla í köruknattleik. Það eru leikmenn og þjálfarar deildarinnar sem standa að baki kosningunni.

Styrmir lék vel með liði ÍA í vetur á sínu fyrsta tímabili í efstu deild Íslandsmótsins. Hann lék alla 22 leiki liðsins í vetur og lék að meðaltali í 30 mínútur í hverjum af alls 40 mínútum sem leikurinn stendur yfir. Hann skoraði 11 stig að meðaltali.
Linards Jaunzems leikmaður KR var valinn besti erlendi leikmaður deildarinnar.
Ægir Þór Steinarsson, Stjörnunni, er besti varnarmaður deildarinnar.
Úrvalslið Bónusdeildarinnar er þannig skipað en aðeins íslenskir leikmenn koma til greina í lið ársins.
Ægir Þór Steinarsson, Stjarnan.
Kári Jónsson, Valur
Þórir Þorbjarnarson, KR
Orri Gunnarsson, Stjarnan
Kristófer Acox, Valur
Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur er þjálfari ársins og Þórir Þorbjarnarson hjá KR er leikmaður ársins.




















