
Aldís Ylfa Heimisdóttir hefur óskað eftir því að láta af störfum sem landsliðsþjálfari U15 landsliðs kvenna og yfirmaður Hæfileikamótunar N1 og KSÍ. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.
Skagakonan hóf störf hjá KSÍ í byrjun árs 2025 þegar hún var ráðin landsliðsþjálfari U17 og U16 kvenna.

Í byrjun október sama ár tók Aldís svo við starfi yfirmanns Hæfileikamótunar N1 og KSÍ og sem landsliðsþjálfari U15 kvenna.
Aldís Ylfa mun klára þau verkefni sem fyrir liggja áður en hún lætur af störfum hjá KSÍ.




















