
Eins og fram kom í gær, þann 1. apríl 2026, á Skagafrettir.is hefur Vegagerðin boðað viðamiklar lokanir í Hvalfjarðargöngunum eftir páskahátíðina. Þar sem tilkynningin barst á hinum eina sanna 1. apríl áttu margir von á því að um aprílgabb væri að ræða. Svo er ekki.
Endurnýja á lýsingu í göngunum og hefst vinna þann 7. apríl 2026 og verklok eru áætluð 52 dögum síðar eða 29. maí.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur eftirfarandi fram:
„Hvalfjarðargöng verða lokuð aðfaranætur sunnudags til föstudags frá kl. 21:30 til 06:00 frá 7. apríl til 29. maí. Hjáleið verður um Hvalfjörð (47). Opið verður fyrir umferð aðfaranætur laugardags og sunnudags.“
Haraldur Benediktsson bæjarstjóri á Akranesi segir í viðtali við RÚV að fyrirhuguð lokun hafi mikil umtalsverð áhrif.
„Við munum eiga samtal við Vegagerðina og ræða hvort hægt sé að vinna með þessa stöðu,“ segir hann. „Það myndi breyta miklu að fá fylgdarakstur að minnsta kosti hluta af lokunartímanum,“ segir Haraldur sem tekur fram að fylgdarakstur hafi áður verið hluti af lokunum Vegagerðarinnar í göngunum.




















