Lionsklúbbur Akraness afhenti í gær Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi gjafabréf að verðmæti 6,3 milljónir kr.
Leiga á leiðisskrossum í kirkjugarðinum á Akranesi um jólahátíðina er helsta fjáröflun klúbbsins.

Eftirfarandi tæki verða keypt fyrir gjafabréfið: Schiller hjartalínuritstæki, Siemens blóðrannsóknartæki, Mach 130 færanlegt vinnuljós og búnað til aðgerða á blöðruhálskirtli.
Guðjón V. Guðjónsson afhenti gjafabréfið fyrir hönd Lionsklúbbsins en með honum á myndinni eru frá vinstri: Hulda Gestsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar HVE, Jóhanna Fjóla Jóhannsdóttir forstjóri HVE og Þórir Bergmundsson læknir og nefndarmaður áhaldakaupasjóðs HVE.




















