
Í desember árið 2022 var greint frá því að stefnt væri að uppbyggingu hótels, heilsulindar, baðlóns og uppbyggingu íþróttamannvirkja við Jaðarsbakka.
Ísold fasteignafélag gerði á þeim tíma samkomulag við Akraneskaupstað, ÍA og Knattspyrnufélag ÍA og Basalt arkitektar voru ráðnir sem hönnunaraðila verkefnisins.

Basalt lagði fram tillögu í október 2023 sem kynnt var á íbúafundi í Bíóhöllinni – en þar var m.a. lagt til að Akranesvöllur væri samhliða Akraneshöllinni, og baðlón og hótel yrði byggt á þeim stað sem knattspyrnuvöllurinn er dag. Nánar í þessari frétt á vef Skagafrétta.
Í nýrri fundargerð fundargerð starfshóps um uppbyggingu mannvirkja á Jaðarsbökkum kemur fram að ekki sé gert ráð fyrir hóteli á svæðinu – og heildarskipulag svæðisins verði skipulagt á ný.
Leitað verður á ný til Basalt arkiteka varðandi tillögu að heildarskipulagi svæðisins þar sem að Jaðarsbakkasvæðið verði miðstöð heilsu, íþrótta og hreyfingar, með skýra tengingu við sjóinn og Langasand.
Eftirfarandi forsendur eru lagðar fram í fundargerðinni:
- Staðsetning fyrir 50 metra innisundlaug á svæðinu.
- Uppbygging æfingavallar austan megin við Akraneshöll.
- Líkamsrækt á svæðinu með tengingu við sundlaug.
- Endurbætur á Aðalvelli og uppfærð stúka.
- Byggingarreitur á svæðinu fyrir íþróttatengda starfsemi sunnan við Akraneshöll og þjónustu starfsemi á vestur hluta svæðisins.
- Uppbygging félagsrýma til sameiginlegrar notkunar fyrir aðildarfélög ÍA og frístund Grundaskóla.
- Tengibygging fyrir nýja íþróttahús.
- Strandstígur og bætt aðgengi að Langasandi.
- Aðstaða fyrir Guðlaugu.
- Að ekki verði gert ráð fyrir hóteli á svæðinu.
- Jafnframt skal í tillögunni sérstaklega skoða flæði og umferð innan svæðisins með hliðsjón af notkun íþróttamannvirkja, skólabarna, líkamsræktar, almennings og stórra viðburða.
- Standa þarf enn betur að lýsingu og aðgengi fyrir gangandi, hjólandi og akandi.
- Á Jaðarsbökkum verði miðstöð heilsu, íþrótta og hreyfingar, með skýra tengingu við sjóinn og Langasand.
- Fókus á sjálfbærni, umhverfið og náttúruna, og um leið styðja við heildstæð markmið bæjarins um uppbyggingu sterkra innviða, aukin lífsgæði, farsæld og aðdráttarafl fyrir íbúa og gesti.
- Að lokum skal þess getið að í allri núverandi vinnu verði horft til þeirra gagna sem þegar hafa verið unnin og þau notuð til hliðsjónar.



















