Aðsend grein:
Upphafið.

Í lok árs 2024 samþykkti Velferðar og mannréttinda ráð (V&M) Akraneskaupstaðar að taka þátt í samtali um möguleika á að sveitarfélög á Vesturlandi tækju sig saman og kæmu á skammtímavistunar úræði fyrir fötluð börn. V&M hafði þá stefnt að uppbygginu á skamtímavistunar úræði hér á Akranesi en ekki hafði tekist að koma því í framkvæmd m.a. þar sem ekki fannst rétt húsnæði og ytri aðstæður ekki hagfeldar m.a. til nýbyggingar. Skylyrði og skilaboðin frá V&M voru að gerðar yrðu þarfagreinigar á þörf fyrir skammtímadvöl og svo form skammtímadvalarinar, helgar vistun eða jafnvel vikuvistun og hugsanlega neyðarvistun. Jafnvel aðstaða til að venja einstaklinga við sjálfstæða búsetu. Einnig hafði V&M áhuga á að fyrsta úræðið yrði reist á Akranesi. Samráðsvettvangur stjórnenda í velferðarþjónustu sveitarfélaga á Vesturlandi var falið að sjá um samtalið um skammtímavistunar úræðið.
Viljayfirlýsingin.
Í lok árs 2025 berst V&M drög að viljayfirlýsingu þar sem ramma átti inn samstarfið og setja tímalínur. Þarna kemur fram að Þroskahjálp er orðin aðili að þessu samtali (hafði ekki verið rætt í V&M) og er þeirra hlutverk að útvega húsnæði. V&M tekur jákvætt í þetta en óskar eftir breytingum á drögunum sem m.a. fælu í sér að staðsetnig úræðisins verði hluti af því sem verkefnahópur, sem átti að skipa, vinni að að skilgreina samkvæmt þarfagreiningu. Þrátt fyrir þá skoðun okkar að eðlilegt væri að byggt yrði upp úrræð hér á Akranesi vegna stærðar og nálægðar við ýmsa þjónustu þá vorum við tilbúinn að staðsetning yrði ekki fyrirfram ákveðin.
Í byrjun desember með dagsfyrirvara er boðað til undirskriftar á viljayfirlýsinguni og á sú undirskrift að fara fram í Holti í Borgarbyggð. V&M óskar þá eftir því að fá að sjá þá yfirlýsingu sem skrifa á undir. Hún berst meðlimum V&M ca 6 tímum fyrir undirskrift og þá kemur í ljós að um er að ræða upphaflegu drögin án þeirra breyting sem óskað var eftir. V&M óskar þá eftir því að undirskrift verði frestað svo kjörnir fulltrúar geti rætt þá höfnun á breytingum sem óskað var eftir. Í samtölum þennann dag kemur líka fram að stefnt er á að skammtímadvalar úræðið fyrir Vesturland eigi að vera í Holti. Ekki eigi að ræða frekar aðra staðsetningu. Skemst er frá því að segja að kjörnum fulltrúum er neitað að ræða þessar vendingar á þessu stóra máli.
Meirihluti V&M ákveður þá að skrifa ekki undir viljayfirlýsingu um allt annað en rætt hafði verið en önnur sveitarfélög skrifa undir. Þetta er svo staðfest á fundi V&M nokkrum dögum síðar enda þá undirritu afstaðin. Fulltrúi Framsóknar og frjálsa vildi þó skrifa undir eins og kom fram í bókun frá honum. Þess ber að geta að á þessum tímapunkti voru enginn gögn komin fram, eingöngu fyrnefnd drög að viljayfirlýsingu. Engin greining hafði farið fram.
Útspil Framsóknar og frjálsa.
Næsta sem gerist í þessu er að bæjarfulltrúar Framsóknar og frjálsa leggja fram tillögu á fundi bæjarstjórnar 27. Janúar um að senda Bæjarstjóra og skrifa undir téða viljayfirlýsingu. Samkvæmt viljayfirlýsingu átti verkefnahópur að leggja fram tillögur til sveitarstjórna og stjórnar Þroskahjálpar eigi síðar en 13. Febrúar. Áhyggjur Framsóknar og frjálsa voru að við værum ekki við borðið, fengjum engar upplýsingar og fengjum ekki að vera með, ekki að vista okkar fötluðu börn í Holti í Borgarbyggð þar sem ódýrt úræði yrði í boði. Það ótrúlega gerist sem ég hafði ekki upplifað áður, á nær 16 ára bæjarfulltrúa ferli mínum, var að bæjarfulltrúar úr meirihlutanum snúast með Framsókn og frjálsum og í raun lýsa vantrausti á vinnubrögð meirihlutafulltrúa V&M. Samþykkt er að senda Bæjarstjórann í för og undirrita viljayfirlýsinguna.
Viljayfirlýsingu sem kom svo í ljós að ekki var farið eftir, enginn verkefnahópur stofnaður og engin skil á tillögum, allavega ekki til Akraneskaupstaðar.
Samningurinn.
Þann 24. mars er tekið fyrir í V&M undirritaður samningur (án fyrirvara) sem Samtök Sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) hafa gert við ráðgjafafyrirtæki sem á að skila:
Þarfagreining fyrir húsnæði Holts til grundvallar hönnunar og breyting.
Drög að stofnskrá og öðrum skjölum sem nauðsynleg eru til stofnunar félags
Drög að leigusamningi milli Þroskahjálpar og félagsins
Drög að rekstraráælun fyrir félagið
Drög að umsóknum um starfsleyfi
Drög að verkefnisáætlun, sem miðar að því að þjónustan verði í boði frá hausti 2026
Minnisblað til sveitarstjórna um samandregi verkefnið
Áætlað er að verkefninu ljúki 15 apríl en samningurinn er í gildi til 30 maí.
Ekkert hafði frést af málinu, nema fundargerðir sem náðu yfir tímann frá nóv 2024 og til des 2025, eftir uppákomuna á Bæjarstjórnarfundinum 27 janúar. Enginn gögn fylgja samningnum og enginn formleg umræða hafði farið fram þarna í millitíðinni meðal bæjarfulltrúa. V&M samþykkir samninginn athugasemdalaust og vísar til Bæjarráðs. Bæjarráð tekur samninginn fyrir 26. Mars og samþykkir hann líka athugasemdalaust og vísar til samþykktar í Bæjarstjórn. ATH að samningurinn var á milli SSV og ráðgjafafyrirtækis, undirritaður án fyrirvara og þess eðlis að stjórnsýslan á Akranesi þurfti ekkert að samþykkja hann.
Fyrst á Bæjarstjórnarfundi 14. apríl er gerðar athugasemdir við samninginn og þá líka málsmeðferð hanns af undirituðum. Of langt mál yrði að fjalla um þá umræðu sem þar var en ég bendi þeim sem hafa áhuga að hægt er að hlusta á upptöku af fundinum.
En í stuttu máli þá er SSV allt í einu kominn sem aðili að málinu án allra umræðu um það. Verið er að setja saman stofnskrá að félagi sem á að sjá um reksturs skamtímadvalar í Holti, án allra umræðu um það. Þarfagreining fyrir húsnæði Holts til grundvallar hönnunar og breyting. ATH þarfagreinig um þörf á úræðinu og hvernig úræði hentar þeim fötluðu börnum sem eiga að nýt úræðið hefur ekki farið fram. Samt á að þarfagreina húsnæðið. Starfsemi á að hefjast í haust sem segir okkur að ekki verður nema um nauðsynlegasta viðhald að ræða. Starfsemin sem verður þá í sama húsnæði, sennilega lítt breyttu, eins og var þegar skammtímadvöl var aflögð í Holti fyrir ca, 15 árum síðan.
Staðan.
Staðan er sú að nú er verið að þarfagreina fötluð börn inn í húsnæðið í Holti í stað þess að þarfagreina þörf fatlaðra barna og hann svo húsnæðisúræði miðað við það, eitt eða fleirri hvort sem er á einhversstaðar á Vesturlandi eða bara hér á Akranesi.
Við höfðum tækifæri til að starta frábæru verkefni með öðrum sveitarfélögum á Vesturlandi, byggja upp skammtímadvalar úræði eitt eða fleirri fyrir fötluð börn, nútíma úræði sem mundi henta öllum börnum, öllum okkar skjólstæðingum.
En einhvernvegin sitjum við uppi með ekkert eftir eitt og hálft ár annað en gamlan sveitabæ í Borgarbyggð sem var úrelt úræði fyrir ca 15 árum síðan og ætlum að fara að bjóða fötluðum börnum og þá aðeins sumum að fara aftur í fortíðina. Jú sennilega eitthvað ódýrara í núinu en? Engar greiningar, engin minnisblöð fagfólks um að Holt sé málið, ekkert til að byggja ákvörðun á nema að Holt er til og í eigu Þroskahjálpar sem eru hagsmunasamtök fatlaðra.
Hverjum þetta hentar veit ég ekki og hvort þetta er í anda farsæld fyri öll börn svara ég neitandi.
Allt þetta er í boði, fyrir hönd okkar hér á Akranesi, undir forustu Framsóknar og frjálsa.
Einar Brandsson:
Bæjarfulltrúi á útleið







