Golfklúbburinn Leynir á Akranesi og Akraneskaupstaður hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um stækkun Garðavallar úr 18 holum í 27 holur. 
Golfklúbburinn Leynir er á meðal elstu golfklúbba landsins. Árið 2000 var völlurinn opnaður sem 18 holu völlur. 

Um 800 félagsmenn eru í Leyni og á undanförnum árum hefur völlurinn verið mikið aðdráttarafl fyrir kylfinga víðsvegar af landinu – og eru að meðaltali um100 gestir sem koma á Akranes á hverjum degi yfir sumartímann til þess að leika golf á Garðavelli. 

Þetta kemur fram í tilkynningu. 

„Markmið samningsaðila er að tryggja að Garðavöllur þróist áfram til framtíðar sem öflugt íþrótta- og útivistarsvæði þar sem tekið verður mið af þörfum golfíþróttarinnar, almennrar útivistar, náttúru og samfélagslegs ávinnings. Næstu skref samningsaðila er að mynda starfshóp með fulltrúum beggja aðila sem fá það verkefni að vinna málið áfram innan stjórnsýslunnar. Stjórn GL í samstarfi við Vallarnefnd klúbbsins munu skipa nefnd sem mun taka upp þær hugmyndir sem lagðar voru fram til Akraneskaupstaðar fyrr á kjörtímabilinu. Að mörgu er að huga þar sem verkefnið er langhlaup og uppbygging ræðst mikið af fjármagni og mannafla. Samtal við almenna félagsmenn um stækkunina er stjórn Leynis dýrmætt og mun það vera virkt á verkefnatímanum m.a. í formi félagsfunda.“