Karlalið ÍA landaði fyrsta sigri sínum á tímabilinu í Bestu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu í dag með 2-0 sigri gegn Stjörnunni á útivelli.
Markús Páll Ellertsson og Viktor Jónsson skoruðu mörk ÍA. Þetta var þriðja markið sem Markús skorar og er hann markahæstur í liði ÍA. Viktor var að skora sitt fyrsta mark í deildinni á þessari leiktíð.

Byrjunarlið ÍA gegn Stjörnunni; @berndsenphoto
Skagamenn eru í 8. sæti af alls 12 liðum. ÍA er með 1 sigur, 2 jafntefli og 2 tapleiki.
Næsti leikur ÍA er föstudaginn 8. maí og fer hann fram á Akranesi þar sem að lið Keflavíkur er mótherji ÍA.
Leikjadagskráin í maí er þétt hjá ÍA eins og sjá má hér fyrir neðan.
Föstudagur 8. maí – ÍA – Keflavík : Elkem völlurinn kl. 19:15.
Sunnudagur 17. maí – Þór Ak. – ÍA : VÍS völlurinn kl. 16:00.
Fimmtudagur 21. maí – ÍA – ÍBV : Elkem völlurinn: 18:00.
Föstudagurinn 29. maí – FH – ÍA : Kaplakrikavöllur: 19:15.









