Aðsend grein:
Í vaxandi bæ er að mörgu að hyggja. Íbúar vilja fjölbreytta og góða þjónustu, aðlaðandi og snyrtilegt umhverfi og blómlegt atvinnulíf. Allt eru þetta eðlilegar kröfur og væntingar og bæjaryfirvöld verða á hverjum tíma að standa vaktina og leggja sig fram um að bæjarbúar njóti alls hins besta sem nútíminn getur boðið upp á.

Þetta getur þó verið snúið á köflum, það þekkja öll sem hafa valist til forystu í bænum. Stundum þarf að velja á milli margra þarfra verkefna því að ekki eru til nægir fjármunir í bæjarsjóði. Bæjarfulltrúar vita að augu kjósendanna eru á þeim og þess vegna getur stundum verið erfitt að segja nei. Gildir þá svo sannarlega að sá á kvölina sem á völina.
Að varast vextina
Lykilatriði í rekstri bæjarfélagsins er að nýta skattfé almennings á sem hagkvæmastan hátt. Þess vegna er mikilvægt að eyða ekki meiru en aflað er, sum sveitarfélög hafa freistast, stundum af mikilli nauðsyn, til að taka lán sem eru síðan mjög íþyngjandi vegna hárra vaxtagreiðslna. Við hér á Akranesi höfum undanfarin kjörtímabil verið varkár í þessu efni, enda hefur skuldaviðmið bæjarsjóðs lækkað, er nú 68% en var 71% árið 2024. Einnig hefur skuldahlutfall lækkað á sama tíma úr 121% í 110%. Þessar tölur sýna að reksturinn stefnir í mjög jákvæða átt þó að bærinn hafi staðið í afar fjárfrekum framkvæmdum, s.s. byggingu nýja íþróttahússins að Jaðarsbökkum og endurbyggingu mikils hluta bæði Grundaskóla og Brekkubæjarskóla. Þá kemur fram í ársreikningi kaupstaðarins fyrir árið 2025, en hann verður til síðari umræðu í bæjarstjórn þann 12. maí að rekstrarniðurstaða A-hlutans er jákvæð um 408,5 milljónir króna. Þessar lykiltölur sýna að reksturinn er sterkur, bæjarstjórn hefur sýnt ábyrgð og festu og því náð góðum árangri.
Endurbóta er þörf
Góð þjónusta, ábyrgur rekstur bæjarsjóðs og fjölbreytt atvinna einkenna vel rekið sveitarfélag. Við í Samfylkingunni höfum verið í meirihluta síðustu kjörtímabil. Á þeim tíma hefur íbúum fjölgað mikið, gríðarleg uppbygging orðið í íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Þessu fylgja vaxtarverkir, við vitum að margt þarfnast endurbóta. Við erum bjartsýn á framtíðina, vitum að til okkar eru gerðar miklar kröfur og við ætlum okkur að standa undir þeim.
Kristinn Hallur Sveinsson.
Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 3. sæti á lista Samfylkingarinnar á Akranesi








