Aðsend grein:  

Það er mikill sannleikur í þeim orðum að maðurinn lifi ekki á brauðinu einu saman og þurfi, að sínum grunnþörfum uppfylltum, meira til að lifa innihaldsríku og skemmtilegu lífi.  Það er því mikilvægt að í því sveitarfélagi sem við kjósum að búa í, sé gott og fjölbreytt framboð af hlutum sem krydda tilveruna á einhvern hátt og gefa fólki tækifæri á að taka þátt sjálft eða upplifa það sem aðrir skapa. 

Eykur skilning og eflir samstöðu

Þátttaka í listsköpun og viðburðum hefur mikið félagslegt gildi, eykur samheldni og samstöðu og rýfur félagslega einangrun margra. Slík þátttaka stuðlar þar að að auki blöndun ólíkra hópa í samfélaginu og er líkleg til að auka skilning og draga úr fordómum.

Sjálf hef ég sungið í kórum stærstan hluta ævinnar og þekki þetta því vel á eigin skinni. Í kórunum mínum hef ég kynnst fólki, sem ég hefði líklega aldrei rekist á annars og það er líklega fátt sem jafnast á við að skapa hinn fullkomna samhljóm með öðru fólki.

Frumkvæði, elja og kraftur einstaklinga

Við á Akranesi erum svo heppin að hjá okkur er margt frábært í boði, jafnt á sviði menningar og alls konar annars konar viðburða. Við erum svo heppin að hér búa einstaklingar sem hafa sýnt frumkvæði, elju og kraft – sem við samborgarar þeirra njótum góðs af á ýmsan hátt. Hér er nærtækt að nefna hátíðir á borð við Heimaskaga, Vökudaga, Álmanninn, Akranes ultra, Þorrablót Skagamanna og árlega jólatónleika Söngdætra Akraness. 

Vissir þú til dæmis að á Akranesi eru starfandi að minnsta kosti 7 kórar? Að hér eru haldnir álíka margir stórir viðburðir árlega? Nokkrir árlegir tónleikar kóra og sönghópa? Að hér er starfandi á annan tug listamanna (annarra en tónlistarmanna)? 

Ólgandi suðupottur

Menningarlíf og viðburðir hafa þann skemmtilega fylgifisk að vera hreyfiafl sem glæðir bæinn lífi, dregur fólk upp úr sófanum og út úr húsi, hvetur aðra til að hugsa sér til hreyfings og dregur þar að auki gesti til bæjarins og styrkir jákvæða ímynd bæjarins. Hér er því fyrir hendi ólgandi suðupottur, sem er líka kjörinn efniviður í uppbyggingu ferðaþjónustu í bænum.

Meira fjármagn til viðburða og menningar

Við á D-listanum kunnum vel að meta frumkvæði einstaklinga við að koma á fót viðburðum af öllu tagi. Við áttum okkur á þeirri þýðingu sem þessir viðburðir hafa og hversu mikil margföldunaráhrif þeirra eru. Við viljum fyrir alla muni að þessir einstaklingar haldi áfram og að fleiri bætist í hópinn. Við ætlum því að styðja betur við það fólk sem stendur í slíku, auka fjárframlög til þessa málaflokks og gera fasta samstarfssamninga við a.m.k. tvo fasta viðburði á ári.    

Bjarnheiður Hallsdóttir.

Höfundur skipar 2. sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórnarkosningunum 2026 á Akranesi.