Málefni eldri borgara skipta sífellt meira máli í samfélagi sem er að eldast. Eldri borgurum hefur fjölgað jafnt og þétt á Akranesi, enda hvergi betra að búa. Mikilvægt er að framtíðarsýn í málefnum aldraðra sé byggð á raunverulegri þekkingu, reynslu og virðingu fyrir einstaklingnum. Eins verðum við að hugsa í raunhæfum lausnum.
Á Akranesi er mikil samvinna milli félagsþjónustu, dagdvalar og heimahjúkrunar. Unnið er að fullri samþættingu í gegnum verkefnið „Gott að eldast“. Eldra fólk vill flest lifa sjálfstæðu lífi sem allra lengst. Til þess að það gangi upp þarf að bæta í þjónustu og úrræði. Stuðningsþjónusta er forsenda þess að einstaklingur sem er að missa færni geti búið lengur heima við öruggar aðstæður. Þar skiptir mestu máli að þjónustan sé samræmd, aðgengileg, sveigjanleg, persónumiðuð og byggð á trausti.
Notaðu það eða misstu það
Á Akranesi er ýmislegt í boði fyrir eldri íbúa. Nýlega var gefinn út bæklingur með upplýsingum um framboð þjónustu fyrir þennan hóp. Forvarnir eru mikilvægar fyrir alla aldurshópa. Einstaklingar sem fá of mikla aðstoð við hluti sem þeir eru enn færir um að gera, þó það taki lengri tíma, missa sjálfstæðið mun fyrr. Rannsóknir sýna að aldraður einstaklingur missir styrk um allt að 10% í fótum eftir 10-14 daga rúmlegu. Ef hann hættir að sinna einni daglegri athöfn eins og að klæða sig í sokka í 4-6 vikur verður hann orðinn 25 -40% háðari aðstoð eftir það.
Þetta er ástæðan fyrir því að stuðningsþjónusta á Akranesi leggur áherslu á
þjálfun en ekki aðstoð. Gætum þess að ræna ekki lífsgæðum einstaklinga.
Sprækir Skagamenn eru skýrt dæmi um hvernig efla má heilsu, færni og sjálfstæði með markvissum hætti. Verkefnið snýr að reglulegri hreyfingu, félagslegri þátttöku og aukinni virkni. Með því náum við að bæta jafnvægi, líkamsstyrk og hreyfigetu sem og að auka sjálfstraust og styrkja félagsleg tengsl.
Hvað svo?
En hvað gerist þegar færni og geta er orðinn lítil, einstaklingur þarf aðstoð allan sólarhringinn eða eftirlit og sjálfstæð búseta ekki raunhæfur kostur?
Vöntun á hjúkrunarrýmum á Akranesi er því miður ekki ný frétt. Fjöldi þeirra sem eru á biðlista hefur verið tæplega 60 einstaklingar undanfarið ár, en hjúkrunarrýmin á Höfða eru 73 talsins. Þegar hjúkrunarþyngd einstaklingar sem búa heima er mikil, verður álagið á aðstandendur gríðarlegt.
Brýnt er að efla dagdvöl og þá sérstaklega sérhæfða dagsdvöl sem er fyrir heilabilaða, en þar er mikil vöntun. Í sérhæfðri dagdvöl er markmiðið að rjúfa félagslega einangrun einstaklinga með heilabilun, viðhalda sjálfbjargargetu og efla þátttöku í daglegum athöfnum. Með öflugri dagdvöl sem virkni- og forvarnar úrræði má draga úr félagslegri einangrun og þannig auka lífsgæði og seinka þörf fyrir kostnaðarsamari þjónustu. Samtal hefur verið í gangi milli Höfða og ríkis um fjölgun rýma en hefur það ekki gengið eins hratt og þörf er á. Það er hlutverk kjörinna fulltrúa að standa vörð um um þá þjónustu sem þörf er á og fylgja eftir að ríkið standi við sitt.
Höfundur er Ragnheiður Helgadóttir, deildarstjóri heimahjúkrunar.

Hún skipar 5. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins á Akranesi.








