Aðsend grein: 

Vinnuskólinn hefur verið starfræktur á Akranesi í fjölda ára og hafa flest allir bæjarbúar minningar frá því að hafa rakað tún bæjarins og unnið að fegrun hans með einum eða öðrum hætti. Síðan vinnuskólinn hóf starfsemi sína hefur samfélagið þróast hratt en vinnuskólinn staðið í stað. Nú er staðan orðin þannig að vinnuskólinn getur ekki boðið börnum í 8. bekk vinnu. Því þarf að breyta! En vanda þarf til verka.

Vinnuskólinn er eini skóli bæjarins sem hingað til hefur ekki tilheyrt skóla- og frístundasviði eins og aðrar skólastofnanir bæjarins. Vinnuskólinn tilheyrir skipulags- og umhverfissviði, en nú er blessunarlega unnið í að breyta því. Það gefur því auga leið að áherslan hingað til hefur verið á orðinu “vinnu” en ekki orðinu “skóli”. Við í Samfylkingunni viljum breyta því. 

Vinnuskólinn er fyrsta skref flestra Skagamanna út á vinnumarkaðinn og við verðum að taka vel á móti þeim. Við gerum það með fræðslu um samfélagið, vinnuhætti, vinnustaði, ferilskrárgerð, launaseðla, verkalýðsfélög, fyrirtæki, félagsleg tengsl og margt fleira sem tengist því að vera partur af atvinnulífinu. Þetta er skólinn sem á að eiga sér stað í vinnuskólanum.

Fjölhæfir flokkstjórar

Nú er mikil umræða um vöntun á flokkstjórum í vinnuskólanum og í kjölfarið hvað það felur í sér að vera flokkstjóri. Við sem samfélag hljótum að gera ríkar kröfur til þeirra sem vinna með börnum á öllum skólastigum og öðrum vettvangi, líka í vinnuskólanum. Kennarar og fagfólk í frístundastarfi þurfa menntun til að vinna með börnum. Fagaðilar sem sækja sér þekkingu og fólk sem hefur reynslu og þekkingu sem snýr að vinnu með börnum er fólkið sem við viljum hafa í vinnu með börnunum okkar. Börn í 8. bekk eru ekki starfsfólk eins og við sjáum í fyrirtækjum og á almennum vinnumarkaði og því er ráðning í störf í vinnuskólanum ekki sú sama og á almennum vinnumarkaði. Þetta eru fyrst og fremst börn. Við getum ekki bara ráðið inn “einhverja á atvinnuleysisskrá” eða 18 ára krakka til að sitja yfir krökkunum á meðan þau eiga að vinna, starfið er mun meira og flóknara en það, enda eru gerðar þær kröfur að flokkstjórar verði að vera að minnsta kosti 20 ára. Það er algjör lágmarkskrafa.

Í vinnuskólanum er flokkstjórinn með alla ábyrgð, hann er leiðbeinandinn, yfirmaðurinn og verkstjórinn, hann veitir einstaklingsbundna kennslu í þeim verkefnum sem þarf að sinna og er félagslegur leiðbeinandi. Flokkstjóri í dag fær til sín hóp af 30 mismunandi unglingum með mismunandi þarfir og mis krefjandi hegðun, grassvæði og tilheyrandi verkefni og þarf þar að auki að sinna forvörnum og tómstundastarfi, allt í bland. Laun hafa ekki fylgt þessum auknu kröfu sem við gerum til flokkstjóra og því ekki skrítið að umsóknum fækki. Þessu þarf að breyta, laun þurfa að hækka, fækka þarf í hópum niður í 15 og við verðum að gera starf flokkstjóra eftirsóknarvert.

Gerum betur!

Auðvitað viljum við bjóða upp á vinnuskóla fyrir börn í 8. bekk en spurningin er: Á hann að vera vinna eða skóli? Viljum við ekki skapa grundvöll fyrir krakka í 8. bekk til að læra raunverulega á atvinnulífið en ekki aðeins labba um bæinn eftirlitslaus í 3 tíma á dag að tína rusl? Viljum við hafa fræðslu og mögulega námskeið sem krakkarnir sækja fyrsta sumarið í vinnuskólanum það góð að þegar krakkarnir eru í 9. bekk og koma aftur í vinnuskólann, þá eru þau betur í stakk búin að sinna þeim verkefnum sem bíða og öðlast þannig þá dýrmætu reynslu sem vinnan gefur? Jafnvel að þau komi svo ekki aftur í 10. bekk eða við 17 ára aldur því þau eru komin út á almennan vinnumarkað með þekkingu frá vinnuskólanum að vopni.

Þetta á ekki aðeins við um 8. bekk heldur allan aldur vinnuskólans. Við hljótum að vilja að vinnuskólinn þróist í takt við samfélagið en standi ekki í stað og sé alveg eins og hann var fyrir 20-30 árum. Við eigum ótrúlega hæfileikaríka krakka hér á Akranesi og fegrun bæjarins, sem vinnuskólinn sinnir, þarf ekki að einskorðast við græn svæði. Leyfum krökkunum að vinna við listir, sköpun, jafningjafræðslu og svo margt fleira sem þau svo sannarlega geta gert. En gerum þetta með faglegum hætti, góðum leiðbeinendum og flottum flokkstjórum. Tíðarandinn er ekki sá sami og fyrir 20 árum og þarfir barna ekki þær sömu. Markmið samfélagsins hlýtur alltaf að vera að mæta þeim! 

Skapandi sumarstörf

Í vinnuskólanum hefur undanfarin ár verið rekinn “listavinnuskóli” með góðum árangri en hann þarf að efla. Fjölgum listgreinum, í stað þess að hafa eina listgrein á ári eins og er núna ættum við að hafa þær sem flestar. Tengjum skapandi sumarstörf við vökudaga, 17. júní, írska daga og sólríka daga á Skaganum yfir sumartímann. 

Hér á Akranesi eigum við fjöldann allan af hæfileikaríkum ungmennum sem geta auðgað mannlíf og menningu og fegrað bæinn til muna ef við búum til vettvang og gefum þeim tækifæri til þess. Setjum X við S og látum hlutina gerast! 

Jón Hjörvar Valgarðsson.

Höfundur er fyrrum flokkstjóri í vinnuskólanum og skipar 5. sæti á lista Samfylkingarinnar á Akranesi.