Aðsend grein:
Á Akranesi hefur löngum gilt einföld regla: Ef fólk er tilbúið að leggja hart að sér, þá á það að fá tækifæri.
Þess vegna eru blikur á lofti þegar ungt fólk á Skaganum sér nú bæði sumarstörfum fækka umtalsvert og um leið þrengja að tækifærum framtíðar vegna ytri áhrifa – á sama tíma ákveður bæjarstjórn að draga saman seglin, í stað þess að sækja fram.
Ástandið á Grundartanga er öllum ljóst. Bilun hjá Norðurál, sem hefur til allrar lukku gengið betur en óttast var að lagfæra, hefur haft bein áhrif á starfsemi og afleidd áhrif víða í samfélaginu. Á sama tíma glímir Elkem við þrengingar sem rekja má meðal annars til verndartolla ESB og erfiðrar samkeppnisstöðu evrópsks iðnaðar. Þetta eru ekki bara tölur í excel-skjölum. Þetta hefur raunveruleg áhrif á fjölskyldur, fyrirtæki og ekki síst ungt fólk sem hafði ætlað sér að vinna í sumar, safna sér fyrir námi eða einfaldlega komast inn á vinnumarkaðinn.
Þegar slíkt ástand skapast mætti ætla að sveitarfélagið brygðist við af krafti. En því miður virðist núverandi bæjarstjórn fara þveröfuga leið. Í stað þess að auka sveigjanleika og opna fleiri leiðir inn á vinnumarkaðinn hefur aðgengi ungs fólks að vinnuskóla bæjarins verið þrengt. Það er erfitt að skilja þá forgangsröðun að þegar atvinnulífið berst í bökkum, þá bæti bæjarfélagið í þá stöðu.
Vinnuskólinn er ekki bara kostnaðarliður. Hann er fyrsta skref margra inn í ábyrgð, sjálfstæði og atvinnulíf. Fyrsti launaseðillinn skiptir máli. Fyrsta reynslan af vinnu skiptir máli. Fyrsta tilfinningin fyrir því að samfélagið hafi þörf fyrir mann skiptir máli.
Það þarf því nýja hugsun á Akranesi. Við eigum ekki að bíða eftir því að stormurinn gangi yfir – við eigum að mæta honum.
Við þurfum sérstakt atvinnuátak fyrir ungt fólk næstu sumur, þar sem sveitarfélagið vinnur með fyrirtækjum, íþróttafélögum og félagasamtökum að því að skapa fleiri störf og verkefni. Við eigum að skoða tímabundna stuðningssamninga við fyrirtæki sem ráða ungmenni til sumarstarfa. Við eigum að nýta framkvæmdir bæjarins betur til að skapa störf fyrir námsmenn og iðnnema. Og við eigum að gera vinnuskólann að öflugri brú yfir í atvinnulífið – ekki þrengri flöskuhálsi.
Til lengri tíma þarf Akranes svo að berjast af meiri krafti fyrir fjölbreyttara atvinnulífi. Það þýðir fleiri tæknistörf, aukna nýsköpun, sterkari tengingu við iðn- og verknám og markvissa stefnu um að laða hingað ný fyrirtæki. Ungt fólk á ekki að þurfa að velja milli þess að flytja burt eða sætta sig við færri tækifæri.
Skaginn á ekki að vera bær þar sem dyr lokast. Hann á að vera bær þar sem dyr opnast.
Hrafn Ágúst Björnsson.
Setjum X við M í kosningunum þann 16. maí og látum verkin tala.










