Aðsend grein:
Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna þann 16. maí næstkomandi hefur mikið verið rætt og ritað um hið glæsilega og fjölbreytta íþróttastarf sem fram fer í bænum okkar. Það er sannarlega ekki sjálfsagt að sveitarfélag á stærð við Akranes geti boðið upp á fjölda mismunandi íþróttagreina og Íþróttabandalag Akraness á mikið hrós skilið fyrir það öfluga starf og þann frábæra árangur sem þar hefur náðst.

En samfélag sem vill hlúa vel að börnum, ungmennum og fjölskyldum þarf einnig að horfa til tómstundaiðkunar utan hefðbundinnar íþróttahreyfingar. Dæmi um slíka tómstundaiðkun er Tónlistarskólinn á Akranesi. Um 340 börn og fullorðnir stunda þar nám í hljóðfæraleik, söng, tónfræði og fleiru sem sýnir skýrt hversu stóran sess tónlistin skipar í samfélaginu okkar. Tónlistin er ekki aðeins áhugamál. Hún er menntun, sköpunarkraftur, sjálfstjáning og samfélagsauður. Akranes hefur í gegnum tíðina alið af sér fjölmargt framúrskarandi tónlistarfólk sem undirstrikar mikilvægi þess að halda áfram að styðja við fjölbreytt tækifæri til uppbyggilegrar tómstundaiðkunar.
Styðjum við skapandi listir
Við eigum að vera stolt af því öfluga íþróttastarfi sem stendur til boða í bænum, en jafnframt tryggja að sami metnaður og stuðningur nái einnig til annarra mikilvægra þátta á borð við tónlist, listir og skapandi starf. Öflugt samfélag byggir nefnilega ekki aðeins á því að bjóða upp á fjölbreytta hreyfingu heldur einnig að rækta sköpun og menningu. Skipulagt starf í listum og sköpun á Akranesi er hins vegar ekki á nægilega góðum stað. Leiklistarklúbbur FVA er til dæmis eina formlega leiklistarfélagið á Akranesi eftir að Leikfélag Akraness hætti störfum.
Listfélag Akraness hefur á sama tíma verið helsti drifkraftur skapandi lista í bænum, en stendur frammi fyrir algengum vanda: skorti á aðstöðu sem raunverulega uppfyllir þarfir félagsins. Til þess að listafólk geti notið sín til fulls og náð því besta fram úr sköpunarmætti sínum þarf aðstaðan að vera til staðar. Það búa ekki allir við þann munað að hafa eigið rými, stóran bílskúr eða vinnustofu sem hægt er að nýta til listsköpunar og þar getur sveitarfélagið gegnt mikilvægu hlutverki.
Samfylkingin á Akranesi vill með opnun menningarhúss rétta listafólki hjálparhönd og skapa því húsnæði sem mætir þeim fjölbreyttu þörfum sem skapandi starf krefst. Með því getum við stutt betur við listir og menningu í bænum og skapað umhverfi þar sem sköpunarkrafturinn fær raunverulegt svigrúm til að blómstra.
Elvar Sigurjónsson:
Höfundur skipar 14. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar á Akranesi fyrir komandi sveitastjórnarkosningar.










