
Frístundastyrkir verða hækkaðir um 20% á ári næstu fjögur árin.
Tillaga þess efnis var samþykkt í bæjarráði nýverið.

Breytingin tekur gildi árið 2027 og er gert ráð fyrir að kostnaðarauki Akraneskaupstaðar við fyrstu hækkunina verði rúmlega 10 milljónir kr.
Akraneskaupstaður styrkir frístundaiðkun allra barna og unglinga á aldrinum 5-17 ára sem hafa lögheimili á Akranesi. Tómstundaframlagið gildir fyrir þau börn sem verða 5 til 17 ára á árinu.
Árið 2026 er tómstundaframlagið 40.200 krónur fyrir eitt barn, 45.200 krónur fyrir hvert barn þar sem tvö börn eru skráð með sama lögheimili og 51.000 krónur fyrir hvert barn þar sem þrjú eða fleiri börn eru skráð með sama lögheimili.
Eftir breytinguna árið 2027 verða áðurnefndar upphæðir 48.280, 54.240 og 61.200.
Skóla – og frístundaráð Akraness hefur unnið að tillögum um breytingar á frístundastyrkjum lagði ráðið til umtalsverðar hækkanir á styrkjunum. Bæjarráð hefur samþykkt tillöguna og aðeins á eftir að ganga frá málinu í bæjarstjórn.
Í fundargerð skóla – og frístundaráðs kemur fram að með tillögunni sé stigið mikilvægt skref efla frístundastuðning sveitarfélagsins og færa hann nær því sem almennt gerist í öðrum sveitarfélögum, stuðla að aukinni þátttöku barna í skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi og styðja við barnafjölskyldur á Akranesi.










