Lokatölur hafa verið birtar í bæjarstjórnarkosningunum 2026 á Akranesi. 

Kjörsókn var 69,7% en til samanburðar var kjörsóknin árið 2022 62,5%.  
Alls greiddu 6.296 atkvæði í þessum kosningum. 

Fimm flokkar buðu fram á Akranesi að þessu sinni og tveir flokkar koma í fyrsta sinn með bæjarfulltrúa inn í bæjarstjórn Akraness. 

Atkvæðin skiptust þannig:

XD – Sjálfstæðisflokkurinn 3 bæjarfulltrúar – 33, 6%
Líf Lárusdóttir, Bjarnheiður Hallsdóttir, Guðmundur Ingþór Guðjónsson. 

XB – Framsókn og frjálsir 2 bæjarfulltrúar – 23, 6% 
Ragnar Baldvin Sæmundsson, Liv Aase Skarstad.

XS – Samfylkingin 2 bæjarfulltrúar – 22,3 %
Sigurður Vopni Vatnsdal, Jónína Margrét Sigmundsdóttir.

XC – Viðreisn 1 bæjarfulltrúi – 10,7 %
Jón Guðni Guðmundsson er fyrsti bæjarfulltrúinn úr röðum Viðreisnar á Akranesi. 

XM – Miðflokkurinn 1 bæjarfulltrúi – 9,7 %
Hrafn Ágúst Björnsson er fyrsti bæjarfulltrúinn úr röðum Miðflokksins á Akranesi. 

Fjórir af alls níu bæjarfulltrúum eru nýir í bæjarstjórn. Bjarnheiður Hallsdóttir, Sigurður Vopni Vatnsdal, Jón Guðni Guðmundsson og Hrafn Ágúst Björnsson. 

Í síðustu kosningum árið 2022 voru þrír flokkar í framboði og fengu öll framboðin 3 kjörna fulltrúa. Sjálfstæðisflokkur og Samfylking mynduðu meirihluta en Framsókn – og frjálsir voru í minnihluta.