Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn – frjálsir hafa komist að samkomulagi um myndun meirihluta í bæjarstjórn Akraness.

Frá þessu er greint á vef Skessuhorns

Þessir flokkar hafa aldrei áður myndað meirihluta um stjórn bæjarfélagsins í 84 ára sögu Akraneskaupstaðar. 

Líf Lárusdóttir verður formaður bæjarráðs og Ragnar B. Sæmundsson forseti bæjarstjórnar. 

Greint verður síðar frá hvernig verkum og embættum verður skipt á milli flokkanna. 

Líf Lárusdóttir, Bjarnheiður Hallsdóttir og Guðmundur Ingþór Guðjónsson sitja í bæjarstjórn fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. 

Ragnar B. Sæmundsson og Liv Aase Skarstad eru í bæjarstjórn fyrir hönd Framsóknar – og frjálsra. 

Á síðasta kjörtímabili, 2022-2026, mynduðu Samfylking og Sjálfstæðisflokkur meirihluta. 

Á kjörtímabilinu 2018-2022 voru Framsókn – og frjálsir í meirihluta ásamt Samfylkingu. 

Niðurstöður kosninganna:

B-Listi: 1.006 atkvæði – 23,65% – 2 menn kjörnir

C-Listi: 454 atkvæði – 10,67% – 1 maður kjörinn

D-Listi: 1.431 atkvæði – 33,64% – 3 menn kjörnir

M-Listi: 414 atkvæði – 9,73% – 1 maður kjörinn

S-Listi: 949 atkvæði – 22,31% – 2 menn kjörnir

Samtals 4.254 atkvæði og fjöldi kjörinna fulltrúa: 9