Kristín Þórhallsdóttir keppti nýverið á heimsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum sem fram fór í borginni Druskininkai í Litáen.
Hún sett heimsmet réttstöðulyftu og samanlögðu í opnum flokki í flokki M1 – öldunga. Hún fékk bronsverðlaun í sínum keppnisflokki, -84 kg. Kristín, sem keppir fyrir ÍA, varð í sjötta sæti af alls 22 keppendum í -84 kg. flokknum.

Árangur Kristínar var 225 kg í hnébeygju, 120 kg í bekkpressu og 230 kg í réttstöðulyftu, samanlagt 575 kg.
Í klassískum kraftlyfingu lyfta keppendur „á kjötinu“ eins og sagt er. Í klassískum kraftlyftingum eru keppendur ekki að nota vafninga, beygju- og réttstöðulyftu brækur og bekkpressusloppur sem eru úr lítt eftirgefanlegum efnum og gefa meiri styrk því það styður betur við.
Í klassískum kraftlyftingum er þessi búnaður ekki til staðar. Lyftingabelti, hnéhlífar og úlnliðsvafningar er leyfð til að veita stuðning og forðast meiðsli.
Kristín hefur þrívegis verið kjörin sem Íþróttamanneskja Akraness, 2020, 2021 og 2022.






