Dean Martin, aðstoðarþjálfari karlaliðs ÍA í knattspyrnu, tekur við liði efstu deild í Óman á næstunni. Dean mun hætta störfum hjá ÍA eftir leik ÍA og Breiðabliks þann 4. júlí n.k.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍA.

Dean verður aðalþjálfari liðsins Al-Nahda sem er staðsett í borginni Al Buraimi, sem liggur að landamærum við Sádí-Arabíu. Um 120.000 íbúar eru í Al Buraim.

Al Nahdh var stofnað árið 2003. Á síðasta keppnistímabili endaði liðið í fjórða sæti af alls 14 liðum.

Liðið hefur fjórum sinnum fagnað meistaratitlinum í Óman. Félagið er með heimavöll sem tekur um 17.000 áhorfendur. Næsta tímabil í efstu deild í Óman hefst um miðjan ágúst og lýkur því í maí 2027.

Óman er þekkt fyrir olíuframleiðslu en landið er við Persaflóa í Asíu. Í landinu búa rúmlega 5 milljón manns.