Fjölskylduhátíðin Írskir dagar fer af stað í dag og á næstu dögum verður mikið í boði fyrir íbúa á Akranesi og gesti. Í kvöld, þriðjudaginn 30. júní, verða tónleikar á tónlistarsvæði Írskra daga við Sementsbryggjuna þar sem að Slitnir Strengir verða í aðalhlutverki.
Þjóðlagasveitin hefur frá árinu 2001 verið með mikla sérstöðu á íslenska tónlistarsviðinu með því að samþætta í listsköpun sinni ólík listform í heildrænu verki. Hljóðfæraleikur, söngur, leiklist og ljóð eru aðalsmerki sveitarinnar ásamt nýstárlegum flutningi á þekktum lögum.

Í tilkynningu frá Slitnum Strengjum kemur fram að efnisskráin á tónleikunum í kvöld samanstandi af keltneskum þjóðlögum þar sem hressandi jiggar og rælar blandast við fallegar söngballöður sem láta engan ósnortinn.
Tónleikarnir eru kjörið tækifæri til að fara í kvöldstundarferðalag til Írlands og koma sér í stuð fyrir Írska daga.
Húsið opnar 19:15 og Slitnir Strengir stíga á svið kl 20:00.
Miðasala á Tix.is – nánar hér:
Fiðluleikarar eru:
- Arna Pétursdóttir
- Ása Katrín Bjarnadóttir
- Gunnþórunn Valsdóttir
- Harpa Lind Gylfadóttir
- Helena Másdóttir
- Hjördís Tinna Pálmadóttir
- Hlín Guðný Valgarðsdóttir
- Hrefna Berg Pétursdóttir
- Hulda Halldórsdóttir
- Kristín Norðkvist Ragnarsdóttir
- Lena Gunnlaugsdóttir
- Unnur Þorsteinsdóttir
Ylfa Flosadóttir
Stórnandi er Ragnar Skúlason.
Píanóleikari er Flosi Einarsson.
Bassaleikari er Sigurþór Þorgilsson.
Trommuleikari er Eiríkur Guðmundsson.
Gítarleikari er Eðvarð Lárusson
Panflautuleikari er Saidhbhe Eimlíe Ní Sheartáin Channáin






