Elín Anna Viktorsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson eru Akranesmeistarar í golfi 2026. Meistaramóti Golfklúbbsins Leynis lauk í gær og tóku 200 keppendur þátt – sem er metfjöldi.

Mikill vöxtur er í starfi Leynis en alls eru 930 félagar í klúbbnum og í júnímánuði voru leiknir 7200 golfhringir sem er met í rúmlega 60 ára sögu klúbbsins. 

Lokahófið fór fram í gærkvöldi, laugardaginn 11. júlí, þar sem að keppendur og gestir skemmtu sér vel og nutu góðra veitinga frá Galito Bistro. 

Myndasafn frá mótinu er á vef skagafrettir.is 

Það var mikil og hörð keppni um sigurinn í meistaraflokki karla þar sem að 20 keppendur tóku þátt. Guðlaugur Þór sigraði með minnsta mun en hann lék á 303 höggum og fór upp um tvö sæti á lokahringnum. Þetta er í fyrsta sinn sem landsliðskylfingurinn úr Leyni verður klúbbmeistari.  Viktor Ingi Einarsson varð annar og 304 höggum. Tristan Freyr Traustason varð þriðji en hann sigraði Kára Kristvinsson í bráðabana um þriðja sætið. 

Elín Anna Viktorsdóttir varði titilinn í meistaraflokki kvenna. Hún sigraði með sjö högga mun á 351 höggi. Vala María Sturludóttir varð önnur á 359 höggum og Ruth Einarsdóttir varð þriðja á 380 höggum. 

Í fyrsta flokki karla tóku alls 30 keppendur þátt en þar eru kylfingar með 4,5-10,4 í forgjöf. Leiknar voru 72 holur af gulum teigum. 

Sverrir Mar Sverrisson sigraði á 308 höggum, Kristján Kristjánsson varð annar eftir að hafa lagt Davíð Búason í bráðabana um 2. sætið en þeir voru jafnir á 311 höggum. 

Í fyrsta flokki kvenna tóku 10 keppendur þátt en keppendur í þessum flokki eru með forgjöf á bilinu 14-21. Helga Rún Guðmundsdóttir sigraði á 359 höggum, Ella María Gunnarsdóttir varð önnur á 367 höggum. Carmen Llorens varð þriðja en hún sigraði Elínu Rósu Sveinsdóttur í bráðabana um þriðja sætið, en þær léku báðar á 371 höggi. 

Alls voru 22 keppendur í 2. flokki karla sem hófu leik – en í þeim flokki eru keppendur með forgjöf á bilinu 10,5-16,5. 

Ragnar Már Valsson sigraði með fimm högga mun en hann lék á 327 höggum. Kristófer Daði Garðarsson varð annar á 332 höggum. Emil Kristmann Sævarsson og Jón Máni Smith voru jafnir á 342 höggum en Emil hafði betur í bráðabana um þriðja sætið.  

Í 2. flokki kvenna tóku 10 keppendur þátt en í þessum flokki eru leikmenn með forgjöf á bilinu 21,1 – 29.0. 

Kristín Pétursdóttir sigraði á 392 höggum en leiknar voru 72 holur eða fjórir 18 holu hringir af rauðum teigum. Kristjana Jónsdóttir varð önnur á 401 höggi, María Kristín Óskarsdóttir hafði betur í bráðabana um þriðja sætið gegn Helenu Rut Steinsdóttur – en þær léku báðar á 408 höggum. 

Í þriðja flokki karla voru flestir keppendur eða ​35 leikmenn. Í þessum flokki eru kylfingar með forgjöf á bilinu 16,5 – 25,4 og léku þeir af gulum teigum alls 72 holur á fjórum dögum. 

Einar Berg Smárason sigraði á 360 höggum, Stefán Jóhann Hreinsson varð annar á 362 höggum og Unnar H. Eyfjörð Fannarsson varð þriðji á 364 höggum. 

Í þriðja flokki kvenna sigraði Martha Lind Róbertsdóttir á 144 punktum en í þessum flokki eru keppendur með forgjöf á bilinu 29,1 – 37,0. Leikið var af rauðum teigum alls fjóra 18 holu hringi. Laufey Jóhannsdóttir varð  önnur á 126 punktum en hún hafði betur í bráðabana um 2. sætið þar sem að þrír keppendur voru jafnir á 126 punktum. Steindóra Steinsdóttir varð þriðja og Bergþóra Sigurðardóttir varð fjórða. 

Í fjórða flokki karla voru 5 keppendur og þar eru leikmenn með forgjöf á bilinu 25,5 – 36. Keppt var á gulum teigum og alls fjórir 18 holu hringir. 

Helgi Rúnar Bjarnason sigraði á 426 höggum, Sturla Magnússon varð annar á 432 höggum og Einar Brandsson varð þriðji á 438 höggum. 

Í fimmta flokki karla sigraði Davíð Reynir Steingrímsson og Friðbert Óskar Þorsteinsson varð annar. Í þessum flokki eru keppendur með 36 eða hærra í forgjöf og keppt var í punktakeppni alls 54 holur. 

Í flokk karla 50 ára og eldri voru 24 keppendur – sem er met. Sigurður Elvar Þórólfsson sigraði á 322 höggum, Rafnkell Kristján Guttormsson varð annar á 327 höggum. Kristinn Jóhann Hjartarson sigraði Halldór Hallgrímsson í bráðabana um þriðja sætið en þeir léku báðir 331 höggi. 

Sigurður Grétar Davíðsson sigraði í flokki 65 ára og eldri í karlaflokki. Hann lék á 265 höggum, annar varð Hinrik Árni Bóasson á 266 höggum og Eiríkur Jónsson varð þriðji á 268 höggum. Alls tóku 9 keppendur þátt en leiknir voru 3 hringir alls 54 holur. 

Í keppni kvenna eldri en 60 ára voru alls 6 keppendur. Þóranna Hallsdóttir sigraði á 299 höggum og tók Vala María Sturludóttir við verðlaunum fyrir hönd ömmu sinnar. Dagmar Sigurlaug Gunnarsdótir varð önnur á 307 höggum og Ingunn Þóra Ríkharðsdóttir varð þriðja á 310 höggum. 

Í flokki karla 75 ára og eldri voru 8 keppendur. Jón Smári Svavarsson sigraði á 267 höggum en leiknar voru 54 holur á þremur keppnisdögum. Einar Hannesson varð annar á 273 höggum og Þórður Elíasson varð þriðji á 277 höggum. 

Bergþór Guðmundsson og Jónína Rósa Halldórsdóttir sigruðu í punktakeppni í sínum flokkum.