
Einar Margeir Ágústsson, sundmaður úr ÍA, náði sínum besta árangri í 100 metra bringusundi á Evrópumeistaramótinu í 50 metra laug sem fram fer í París í Frakklandi.
Fyrsti keppnisdagur fór fram í dag. Einar Margeir hefur á síðustu þremur árum verið efstur í kjörinu á íþróttamanneskju ársins á Akranesi – og er í hópi fremstu sundmanna landsins.

Tími hans var 60,87 sek. og endaði Einar Margeir í 33. sæti af alls 71 keppendum.
„Ég vildi bara vera nálægt mínu besta og koma til baka frá meiðslum, en ég er bara ógeðslega sáttur með þetta,“ er haft eftir Einari á heimasíðu Sundsambands Íslands.
Keppnin var afar jöfn og munaði litlu að Einar kæmist í undanúrslit. Tíminn sem þurfti til að komast áfram, í 16. sæti, var 1:00,13. Sá tími hefði jafnframt verið nýtt Íslandsmet.
Með tímanum 1:00,87 bætti Einar einnig Akranesmet sitt í greininni en fyrra met hans var 1:01,24, sett árið 2025.
Árangurinn er sérstaklega ánægjulegur í ljósi þess að Einar gekkst undir aðgerð í mars á þessu ári og var frá sundæfingum í um tvo mánuði. Hann hefur því náð ótrúlega góðri endurkomu á tiltölulega skömmum tíma.
Keppni Einars er þó hvergi nærri lokið. Hann keppir næst í 200 metra bringusundi á miðvikudaginn og lýkur keppni sinni með 50 metra bringusundi á föstudaginn.
Beinar útsendingar frá Evrópumeistaramótinu verða á RÚV.






