Arkitektastofan Basalt fékk flest atkvæði hjá íbúum á Akranesi hvað varðar nýtt deiliskipulag á svæðinu við Ægissbraut. 

Akraneskaupstaður mun hefja viðræður við Basalt um næstu skref í þessu verkefni. Þetta kemur fram í fundargerð skipulags – og umhverfisráðs. 

Basalt hefur komið að ýmsum verkefnum á Akranesi á undanförnum árum og þar stendur Guðlaug við Langasand hæst. 

Ægisbrautarsvæðið er eftirsóknarvert svæði til búsetu með útsýni yfir Faxaflóa til vesturs þar sem að Snæfellsjökull trónir í allri sinni dýrð. Akraneskaupstaður hefur m.a. Lýst yfir áhuga á að  hug á því að byggja nýjan leikskóla á þessu svæði.  

Þrjár tillögur voru kynntar á íbúafundi þann 20. maí s.l. en á fundinum voru um 90 einstaklingar. Hönnunarstofunar Hjark, T.ark og Basalt lögðu fram sínar tillögur á þeim fundi. 

Hér má sjá tillögurnar. 

Í framhaldinu fór fram rafræn íbúakosning á vef Akraneskaupstaðar. 

Þar tóku einstaklingar 64 þátt og fékk tillaga Basalt hlaut meirihluta atkvæða alls 41 eða 64,1%

Til samanburðar voru 6.292 á með atkvæðisrétt á Akranesi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2026. Og kjörsóknin var 69,7 %.

Hlutfallið þeirra sem eru með atkvæðisrétt í bæjarstjórnarkosninum í þessum rafrænu kosningu var því rétt tæplega 1%.  

„Í fundargerð skipulags- og umhverfisráð kemur fram að ráðið tekur niðurstöður könnunarinnar til hliðsjónar og tekur jafnframt fram að allar tillögurnar sem kynntar voru voru áhugaverðar og vandað framlag til umræðu um framtíðaruppbyggingu við Ægisbraut. Ráðið þakkar öllum hönnunarstofunum fyrir þátttökuna og þeirra framlag til verkefnisins.“