
Það verður mikið um að vera í gamla Landsbankahúsin við Akratorg um næstu helgi en þá hefjast fyrstu framkvæmdir hjá nýjum eigendum þessa sögufræga mannvirkis við Suðurgötu 57.
Hraun 900 fasteignafélag keypti húsið í byrjun þessa árs, og ætlar félagið að hefja verkefnið af krafti laugardaginn 3. október. Þá mun hópur fólks koma saman ásamt iðnaðarmönnum til að rífa innan úr húsinu og fjarlægja það sem þarf að víkja fyrir nýju hlutverki þess. Til lengri tíma er áformað að byggja húsið upp fyrir hótel, veitingastað og aðra starfsemi sem getur lífgað upp á miðbæ Akraness.

„Okkur langar að þetta verði verkefni sem Akurnesingar geti fylgst með frá upphafi,“ segir Ívar Freyr Sturluson. Höskuldur Gunnlaugsson, Guðjón Pétur Lýðsson og Ívar Freyr eru eigendur félagsins sem keypti húsið í janúar á þessu ári.
„Landsbankahúsið hefur lengi verið áberandi hluti af bæjarmyndinni og við viljum gefa því nýtt líf í góðu sambandi við samfélagið hér,“ bætir Ívar Freyr við.
Stefnt er að því að ljúka fyrsta áfanganum með niðurrifi innanhúss á tveimur dögum og síðan taka við endurbætur á ytri skel hússins.
„Opið hús“ og hægt taka þátt eða fylgjast með
Eins og áður segir vilja nýir eigendur vera í góðu samstarfi við bæjarfélagið á meðan framkvæmdum stendur.
„Hraun 900 vill bjóða íbúum sem hafa áhuga á húsinu að koma við, sjá það og heyra meira um áformin. Þeir sem vilja leggja hönd á plóg við niðurrifið eru einnig velkomnir en þá þarf að hafa samband fyrirfram. Verkefnum verður úthlutað á staðnum eftir aðstæðum og gætt verður að öryggi allra sem taka þátt. Niðurrif og flutningur efnis verða í gangi um helgina. Gestir verða því leiddir um þau svæði sem óhætt er að skoða; vinnusvæði verða afmörkuð. Markmiðið er að hafa góðan dag saman, með kaffi og bakkelsi yfir daginn og pizzum fyrir vinnufólkið. Þetta er upphafið að löngu verkefni. Við ætlum að segja reglulega frá því hvað er að gerast, hvað hefur gengið vel og hver næstu skref eru. Það væri sérstaklega gaman að hitta fólk sem man eftir húsinu frá fyrri tíð og heyra sögurnar sem tengjast því,“ segir Ívar.
Eins og áður hefur komið fram er Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði knattspyrnuliðs Breiðabliks og Guðjón Pétur Lýðsson á langan feril að baki sem leikmaður í efstu deild í knattspyrnu – og hann hefur einnig komið að uppbyggingu á hóteli í Vestmannaeyjum.
Ívar Freyr á einnig feril í fótboltanum en hann hefur komið að markaðsmálum hjá ýmsum fyrirtækjum á undanförnum árum






