
Knattspyrnuliðið Kári frá Akranesi náði sínum besta árangri frá upphafi þar sem að liðið var hársbreidd frá því að komast upp í næst efstu deild.
Kári endaði í 3. sæti með 42 stig en Haukar og Selfoss komust upp í Lengjudeildina á næsta tímabili.

Það eru 16 ár frá því að félagið Kári var sett á laggirnar í núverandi mynd en félagið hefur ávallt verið nánu samstarfi við Knattspyrnufélag ÍA.
Úlfur Arnar Jökulsson tók við liðinu sem þjálfari s.l. vetur og Albert Hafsteinsson var aðstoðarþjálfari ásamt því að leika með liðinu. Úlfur Arnar var valinn sem þjálfari ársins hjá Harkinu sem fjallaði ítarlega um 2. deild karla á leiktíðinni.
Þrír leikmenn úr röðum Kára voru valdir í lið ársins hjá sama þætti. Logi Mar Hjaltested markvörður, Árni Salvar Heimisson og Stefan Bustillo. Matthías Daði Gunnarsson er á varamannabekknum í þessu úrvalsliði og Káramaðurinn Stefán Logi Sigurjónsson var valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar.






