
Nadía Steinunn Elíasdóttir fékk Stínubikarinn á lokahófi yngri flokka Knattspyrnufélags ÍA sem fram fór nýverið.
Nadía Steinunn er fædd árið 2010 og hefur hún leikið með yngri landsliðum Íslands og 45 leiki með meistaraflokk ÍA.

Tilkynning ÍA í heild sinni er hér fyrir neðan:
Stínubikarinn er nefndur í höfuðið á Kristínu Aðalsteinsdóttur, Stínu, sem er fyrsta landsliðskona ÍA – og fær efnilegasti leikmaður ÍA hvers árs í kvennaflokki þessa viðurkenningu.
Kristín Aðalsteinsdóttir var burðarás í liði ÍA í kringum 1980 og lék sinn fyrsta landsleik árið 1981 og alls 3 landsleiki á árunum 1981-1982. Stínubikarinn á að vera hvatning til ungra stelpna að stefna hátt og vinna sér sæti í meistaraflokki ÍA og landsliðinu eins og Stína gerði á sínum tíma. Gefandi bikarsins er Þorgeir og Ellert hf.





