Styrmir Gíslason fékk Donnabikarinn á lokahófi yngri flokka Knattspyrnufélags ÍA sem fram fór nýverið.

Styrmir er fæddur árið 2010 og var hann í lykilhlutverki hjá 3. flokki ÍA sem vann þrjá stóra titla á tímabilinu. Nánar í tilkynningu frá ÍA hér fyrir neðan:


Donnabikarinn er afhentur efnilegasta leikmanni yngri flokka karla. Donnabikarinn var gefinn árið 1983 af fjölskyldu Donna, sem hét fullu nafni Halldór Sigurbjörnsson, en hann var burðarás í fyrsta Gullaldarliði Skagamanna. Hann lék 110 leiki með Skagamönnum og skoraði 40 mörk, en einnig lék hann 8 landsleiki fyrir Ísland.